Í dag hófst Formúlu 3 keppnistímabilið í Bretlandi með fyrstu formlegu
æfingunni. Hátt íþrjátíu ökumenn æfðu í dag úr lands- og meistaraflokk mótaraðarinnar.
Kristján Einar átti annan hraðasta tíma dagsins af 13 bílum í
landsflokknum og var sá þrettándi hraðasti af öllum bílum á æfingunni, þ.e.
landflokks og meistaraflokksbílum. Á undan honum var liðsfélaginn hjá
Andy Meyrick, sem varð 12. í heildina, en þeir tveir skáru sig úr í
landsflokknum, næsti landflokksbíll var í 18. í tímaröðinni.
Dagurinn var óskabyrjun fyrir Carlin Motorsport, akstursliði Kristjáns Einars. Tveir langefstu landsflokks bílar og tveir langefstu meistaraflokksbílar, en bestu tíma í þeim flokki áttu liðsfélagar Kristjáns Einars, Sam Abay frá Ástralíu og Bretinn Oliver Turvey.
kallinn er strax byrjaður að standa sig og það vel
tekið af
http://www.kappakstur.is/?c=frettir&id=538&lid=&pid=