Hver kannast ekki við það, að vera staddur í sundi með félögunum. Svo kemurðu auga á einhvern löðrandi hasarkropp og rennur auðvitað blóð til skyldunnar um að tilkynna félögunum um fundinn.
Ég lenti í þessu í árbæjarlauginni um daginn, en í ógáti talaði ég það hátt að blessuð daman heyrði í mér og uppskar ég ansi einkennilegt augnaráð frá henni.
Í ljósi þessa atburða viðraði ég þá hugmynd við félaga mína um að koma upp einhvers konar dulmáli. Kom þá ágæt hugmynd frá einum sem er ansi bílkynhneigður og er með öll þessi blessuðu "body númer" á bmw á hreinu. Í kjölfarið fór ég að kynna mér þetta og já...
E36 = typical sæt menntaskólastelpa, mismiklar mannvitsbrekkur, þ.e. 4 cylindra eða 6, hver veit.
E39 = 20-25 gellur, þroskaðar, samt ennþá sætar. Aðeins eyðslufrekari, dýrari í rekstri og jafnvel allskonar aukabúnaður sem þú veist ekkert um fyrr en þú ert búin að kaupa... 2-3 börn t.d....
E34 = konur á fertugsaldri, stórglæsilegar margar hverjar (bíllinn hans "Arnarf") en margir hverjir orðnir lúnir og fjósalegir.
E32 = Ja segir það sig ekki sjálft, kannski slatti undir húddinu, en samt SPIKFEITT og gamalt og étur á við 10 hross. Kannski fínt að keyra,,, þegar maður er kominn inn... Aldrei prófað svoleiðis
E36 compact = ég þori nú varla að láta þetta út úr mér en jæja. Þegar hann kemur keyrandi á móti þér kemstu ekki hjá því að horfa, fullkomin hönnun, langar að taka "rúnt", en svo þegar hann að þýtur hjá þá sérðu, ó er þetta compact. Alltof lítill fyrir mig, sbr. litlar stelpur... Þú þráðir þetta í fjarska og langaði mikið, svo sástu afturhlutann og það bara hreinlega vantaði eitthvað og næsta víst er að allir myndu kúka yfir mann fyrir að eiga svona "keyra" svona...
Þetta er svona gróf hugmynd að þessu dulmáli. Hægt væri að henda inn í þessa jöfnu:
felgustærðir = fætur, brjóst
aðalljós = augu
hár = vindskeiðar
widebody = hliðarspik
slammaður = undirhaka (hökur), jafnvel fellingar á baki
shadowline = tönuð í drasl
... og svona mætti lengi telja. Þetta er nú meira eitthvað svona sem verður hugsað á staðnum um hvert eintak fyrir sig. En þetta er svona gróft uppkast af því sem ég hef að segja um þetta mál.