Ókei, það er þá nýtt fyrir mér. Ég vissi ekki til að BMW léti frá sér hluti merkta öðrum framleiðendum í bílum sínum.
Bosch kertin eru merkt sem BMW þegar maður kaupir þau hjá BMW umboði, ekki Bosch. Ég hefði haldið að þaða sama væri með NGK.
Ég er ekki sérfræðingur í þessum málum, en oft hefur verið erfitt að sækja mál á hendur BMW, ef eitthvað kemur upp á, þegar maður er ekki með original hlut frá BMW í bílnum.
Ég man ekki hvort það var verið að tala um það hér á spjallinu, en það eru í umferð aftermarket dót í BMW sem er í pakkningum eins og um original hlut sé að ræða. Ef maður er að kaupa dót af ebay og svoleiðis, þá getur maður ekki einu sinni verið viss um að maður sé að fá original hlut!



