Þórir wrote:
Hafðu eitt hugfast. Það er gaman að hjóla en það er skemmtilegra að vera á lífi. Ekki vera einn af svörtu sauðunum í hjólasportinu sem hanga á torginu í túpugöllum og nefna aldrei tölur undir 200 km/klst. Það eru hjólamennirnir sem við hinir þolum ekki. Farðu rólega, náðu þér í reynslu og farðu svo að spá í draumahjólinu.
Það er einmitt málið, ég tel mig vera mjög meðvitaðan um þá áhættu og slysatíðni sem mótorhjólin bera með sér og allt það, og í raun temmilega hræddur við að láta verða af þessu
Þess vegna vil ég byrja á hjóli sem gefur mér þetta tryllta ,,kick", þ.e. þennan kraftleika sem hjólin veita þér, en engu að síður ekki e-ð sem ég ræð ekki við - sumsé einhvern fínan milliveg.
Að sjálfsögðu byrja ég ekki á stærra en 600cc racer og margir hafa nefnt R6, en persónulega finnst mér það of kraftmikið ennþá
Hef t.d. verið að skoða Kawasaki ER 6N hjól sem eru 650cc, en ekki alveg svona hardcore kraftur eins og er í R6 og 600rr hjólunum.
En ég vil ekki gamalt hjól því ég nenni ekki að vera í einhverju eilífu viðhaldi.