bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 25. Jun 2025 16:52

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 68 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Feb 2008 15:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
Það er enginn að segja að lesblindir séu heimskir og geti aldrei gert neitt gott úr lífinu sínu!

Heldur bara að ef maður er að skrifa texta sem er ætlast til að fólk taki mark á þá má alveg leggja smá meiri metnað í hann, og ef fólk er lesblint þá þarf bara að leggja ennþá meiri metnað í hann!

_________________
BMW E46 318i Touring


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Feb 2008 15:21 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Mon 06. Nov 2006 23:53
Posts: 402
Location: Húsavík
Aron Andrew wrote:
Það er enginn að segja að lesblindir séu heimskir og geti aldrei gert neitt gott úr lífinu sínu!

Heldur bara að ef maður er að skrifa texta sem er ætlast til að fólk taki mark á þá má alveg leggja smá meiri metnað í hann, og ef fólk er lesblint þá þarf bara að leggja ennþá meiri metnað í hann!
vhað mynar þíú Arno Arendw :lol: Hlæ Hlæ

_________________
Hilux 36"
BMW e36 325I
Land Cruiser VX
BMW e34 530IA


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Feb 2008 19:54 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sun 03. Feb 2008 19:57
Posts: 44
Location: Austfirðir
Mig langar að koma með smá herna með lesblindu... Það er nátturlega ekkert að því að vera lesblindur ég er sjáld lesblind en sjálf næ ég alltaf að redda mer út úr hlutunum... Svo líka þeir sem eru lesblindir lenda nátturlega í þvi þegar að þeir eru að lesa að stafirnir fara bara í einn hrærigraut sem getur verið mjög pirrandi en þetta ætti ekkert að koma stafsettningunni mikið við alla vega ekki svona mikið eins og hjá Sigga... Siggi er voðalega duglegur að koma með afsakanir og soldið mikið af þeim...

Langaði bara að segja þetta :wink:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 14. Feb 2008 20:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Posts: 15561
Location: Keflavík
Siggi er alveg rosalega fínn gaur, hann er mótiveraður að gera vel og hann er alltaf reiðubúinn að hjálpa þeim sem að koma vel fram við hann og eru reiðubúnir að aðstoða hann þegar að hann á í basli :!:

Hann er alls ekki vitlaus þó að hann virðist stundum vera það. Hann er "Sleeper".

Stundum kemur tóm þvæla upp úr honum, en það er bara gaman að því :)

Hinsvegar finnst mér ljótt að gera grín að vanfærni hans á sviði skrif/lesrænnar getu.

Hann kannski skrifar eitthvað og finnst það rétt. Þetta er viðurkenndur sjúkdómur og ég hef séð Sigga skrifa með penna og það er alveg jafn vitlaust og það er hér.

Svo að ekki er það nennan, sem að er að koma honum í bobba heldur GETUR hann einfaldlega ekki BETUR :!:

_________________
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 15. Feb 2008 01:23 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. May 2004 13:27
Posts: 1258
Já það hafa verið margir lesblindir sem hafa gert það gott, líka margir sem eru ekki lesblindir.

Setningarnar fara allar í mauk, það er alveg rétt, en þú notar þá bara blað til að setja undir setninguna sem þú ert að lesa eða eltir með puttanum þá smám saman þjálfaru augun til að rugla ekki öllu. Þetta er allt bara þjálfun, samhæfing og leggja á minnið.

Ég nota ekki íslenskureglur þegar ég er að skrifa, ég skrifa bara eftir minni. Ég skrifa oft orð sem ég man hvort eru með -y- eða -i- tvisvar og pæli í því hvort ég kannast betur við.

Þetta er bara æfing, við þurfum bara að hafa meira fyrir þessu en hinir. Sú vinna skilar sér margfalt því allir taka meira mark á þér og þú lítur ekki út fyrir að vera 8 ára.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 15. Feb 2008 01:32 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sun 03. Feb 2008 19:57
Posts: 44
Location: Austfirðir
það er það sem að ég geri líka að prufa mig áfram og það eru held ég margir sem að gera það...


Viktor ég var nátturlega ekki að setja ut á sigga og ég veit sjalf að siggi er alltaf tilbuin að hjálpa fólki hann er duglegur að bua til tíma eða var það alla vega


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 15. Feb 2008 01:40 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. May 2004 13:27
Posts: 1258
Það er kannski erfiðara að kenna fullorðnum manni allt um íslensku og hvernig hann á að lesa/muna orðin. Öll lesblinduleiðrétting/kennsla á að vera kennd í uppeldinu, maður meðtekur allt sem barn.

Heimili eru jafn misjöfn og þau eru mörg og uppeldi er jafn misjafnt og til eru mörg börn. Sumir leggja mikið upp úr námi og sumir bara ekki.

Ef foreldrarnir eru ekki vel menntaðir þá finnst þeim kannski ekki jafn krúsjal fyrir krakkann þeirra að vera alltof menntaðan. "Hey ég kláraði bara grunnskólann og sjáðu mig! Ég lifi frábæru lífi!"

Þessi Siggi hefði geta gert eitthvað í þessu. Allir sem flokkast undir homo sapiens sapiens, eru heilbrigðir og hraustir geta lært þetta...þurfa bara að búa í ákveðnu umhverfi til að geta það.

Þú lærir þetta ekkert sjálfur þegar þú ert 7 ára, þú ákveður ekki sjáfur "ég er lesblindur, ég ætla að gera eitthvað í því!" þegar þú ert 7 ára. Á þessum aldri er fólk sem tekur ákvarðanir fyrir þig.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 15. Feb 2008 11:02 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18
Posts: 657
BmwNerd wrote:
Það er kannski erfiðara að kenna fullorðnum manni allt um íslensku og hvernig hann á að lesa/muna orðin. Öll lesblinduleiðrétting/kennsla á að vera kennd í uppeldinu, maður meðtekur allt sem barn.

Heimili eru jafn misjöfn og þau eru mörg og uppeldi er jafn misjafnt og til eru mörg börn. Sumir leggja mikið upp úr námi og sumir bara ekki.

Ef foreldrarnir eru ekki vel menntaðir þá finnst þeim kannski ekki jafn krúsjal fyrir krakkann þeirra að vera alltof menntaðan. "Hey ég kláraði bara grunnskólann og sjáðu mig! Ég lifi frábæru lífi!"

Þessi Siggi hefði geta gert eitthvað í þessu. Allir sem flokkast undir homo sapiens sapiens, eru heilbrigðir og hraustir geta lært þetta...þurfa bara að búa í ákveðnu umhverfi til að geta það.

Þú lærir þetta ekkert sjálfur þegar þú ert 7 ára, þú ákveður ekki sjáfur "ég er lesblindur, ég ætla að gera eitthvað í því!" þegar þú ert 7 ára. Á þessum aldri er fólk sem tekur ákvarðanir fyrir þig.



Þarna liggur oft kjarni málsins það hefur nefnilega komið í ljós að lesblinda er ættgeng einstaklingur sem greinist lesblindur á yfirleitt lesblint foreldri.

Þetta vita ekki allir og það getur verið mjög erfitt fyrir eldra fólk að viðurkenna það að það hefur alla tíð átt við einhver vandamál að stríða og oft vegna þess að það heldur að það sé að viðurkenna að það sé heimskt.

En það er ekki málið fólk sem er með skynvillur eins og til dæmis lesblindu er ekki heimskt það hefur ákveðna náðargáfu til að sjá hlutina með öðrum hætti en aðrir því að lesblindir sjá ekki orðin sem dæmi heldur mynd af orðinu og það er mjög misjafnt hvaða myndir fólk hefur í huganum að orðum og hvernig það tengir orð við ákveðna hluti ,atburði eða upplifun.

Vandamálið er fyrst og fremst það að það er slatti að myndlausum orðum sem rugla heildina þegar að lesblindir reyna að tjá sig en námskeiðið sem ég nefndi hér á undan gengur útá það að búa til myndir fyrir myndlaus orð svo að fólki gangi betur að tjá sig hvort sem það er í orði eða á prenti.

Lesblinda er náðargáfa en ekki sjúkdómur !

_________________
gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 68 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group