Þetta rakst ég á, einhver krotaði þetta á bloggið sitt eftir að Gunnar Birgis virtist ekki vera að spá mikið í neinum háhýsum á þessu svæði, einhver hafi bara nefnt það einhverntíman

Það er kannski ekki eins gott að búa í kópavogi og ég hélt
Fréttin:
Quote:
Innlent | Morgunblaðið | 14.2.2008 | 05:30
Smáratorg rifið og háhýsi byggt í staðinn?
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru uppi hugmyndir um að rífa verslunarkjarnann við Smáratorg í Kópavogi og reisa háhýsi í hans stað. Ekki er talið líklegt að þetta verði gert í nánustu framtíð. Verslunarkjarninn við Smáratorg hefur verið starfræktur í áratug.
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi segir, spurður um þetta, að manna á millum hafi verið rætt að rífa torgið og byggja háhýsi í nágrenni turnsins sem nýlega er risinn við Smáratorgið.
Ekki hafi þó komið fram tillaga frá eiganda um þetta og málið því ekki til meðferðar hjá bæjaryfirvöldum.
Og hér er póstur sem á að hafa verið sendur milli manna Samfylkingarinnar..
Quote:
Eftirfarandi póstur er af póstlista Samfylkingarinnar í Kópavogi:
„Á fundinum var rætt um skipulagsmál á Glaðheimasvæðinu og raunar í öllum Kópavogsdalnum. Hugmyndir meirihlutans um uppbyggingu þar til viðbótar við það sem þegar er komið eru tröllvaxnar svo ekki sé meira sagt. Meirihlutinn virðist hafa mótað stefnu um háreysta byggð á þessu svæði og sem dæmi má nefna að gert er ráð fyrir allt að 9 turnum eins og þeim sem þegar er risinn við Smáratorg. Sumir þeirra verða jafnvel tvöfalt hærri en sá turn. Byggingamagn mun verða gríðarlegt á Glaðheimasvæðinu og sunnan við Smáralindina og nú er einnig að fara af stað skipulag við Dalveg, frá Málningu og upp úr. Þar er gert ráð fyrir 60 þús fermetrum til viðbótar við Brimborgarhúsið. Já, eins og ein Smáralind. Þetta hefur mikil áhrif á umferð og verður Dalvegur fjórfaldur og Reykjanesbrautin 12 akreinar! Þarna verður mesta umferð á Íslandi. Umferðarhávaði og mengun af völdum bílaumferðar mun stóraukast og þetta allt hefur veruleg áhrif á lífsgæði þúsunda Kópavogsbúa sem búa í Lindum, Smára og suðurhlíðum Kópavogs. Í umræðunum á fundinum lagði bæjarstjóri áherslu á að mikið lægi á að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd. Þau hús sem ekki yrðu byggð þarna risu í öðrum sveitarfélögum! Mengun og hávaða frá umferð taldi hann auðvelt að leysa með því að banna nagladekk, söndun og draga úr umferðarhraða. Á mánudagsfundi Samfylkingarinnar í gærkvöldi voru þessi mál til umræðu og mætti fjölmenni á fundinn og ljóst að bæjarbúar munu ekki taka þessu brjálæðislegu hugmyndum þegjandi og hljóðalaust. Málið er nú að fara fyrir samvinnunefnd um skipulag höfuðborgarsvæðisins og þar mun fulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi mæla gegn þeim. Þess má geta að bæjarstjóri sagði að ef fulltrúi Samfylkingarinnar í samvinnunefndinni greiddi atkvæði gegn tillögu meirihlutans hér í Kópavogi þá væri það ekkert annað en hryðjuverk gegn Kópavogi. Þannig er nú veruleiki hans.“