Alpina wrote:
gstuning wrote:
Alpina wrote:
saemi wrote:
gstuning wrote:
Stappaðu dótið bara,
þú ert búinn að tilkeyra þetta.
Muna bara að skipta um olíu núna og halda áfram.
Hahahahahah ef þetta er ekki Gunni í hnotskurn... no this is me in a nutshell.....
Stappaðu þetta bara........
GUNNI..... ÞAÐ ÞARF AÐ TILKEYRA ....... Vóó .... ekki rengja Gst Þú ert að læra þetta sveinbjörn

Nei Gunnar Reynisson
er ekki að gera lítið úr þér þar sem þú ert víðlesinn og reynslubolti ...
ala hardway og hefur framkvæmt marga ,, hluti hérlendis the pioneerway ..
en mér blöskrar hrokinn og besserwizkan stundum í þér
ATH,, endurtek er ekki finna að þínu námi eða slíku
Sveinbjörn, ég er bara að stríða ÞÉR. Og eingöngu þér.
Það er glettilega gamann að bíða eftir svörunum þínum og ég bíð
eftir þeim þegar ég pósta svona svörum, kannski geri ég of mikið af því.
Þegar menn eru að segja hitt og þetta með í raun ekkert nema eitthvað sem þeir heyrðu annarstaðar frá eða halda eitthvað þá finnst mér lítið í það tekið, Ef mín svör stangast á við það þá pósta ég tilvísun í þau rök sem ég vil meina að svör mín styðjast við.
Ef ég þarf þá pósta ég endalausum rökum til að hindra mis-information á internetinu þá geri ég það. Því meira sem ég læri hérna úti bæði í námi/leik og starfi þá tek ég eftir ógrynni af röngum upplýsingum á floti útum allt.
Ég er bara að reyna sporna við því.
Með olíubornar legur. Það er EKKI HÆGT að tilkeyra þær, því að það er EKKI málmur í málm nudd í gangi á þeim, heldur draga þær olíu utan um sig útaf seigju olíunar og þrýstings í kerfinu, sveifarásinn er á floti á olíuhimnu, sama með stangarlegur. Hvernig er hægt að tilkeyra eitthvað sem er á floti? olía getur ekki slípað legurnar, ef það er málmur í málm nudd þá er alveg 100% augljóst að verkið var ekki gert rétt.
Það þarf að tilkeyra hringi annarsvegar, Enn enga 1000km eins og menn halda, því að það eru ekki ferðirnar upp og niður sem telja heldur er það hvernig þeir eru slípaðir inn, þrýstingur á hringnum útí cylender veggina er það sem slípar, þannig að ef það er settur þrýstingur á stimpilhringina með aukinni gjöf og svo sleppa gjöf þá slípast þeir hraðar og betur enn að reyna slípa þá til baðaða í olíu.
Þetta er EKKI eitthvað sem ég er að finna upp hérna á lyklaborðinu mínu til að bulla í öllum, heldur er þetta það sem gerist þegar nýjir hringir og honaðir veggir eru settir í gang í fyrsta skipti.
Vertu alveg viss um það sveinbjörn að ég er bara að reyna upplýsa fólk.
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
