Eins og kom framm í einhverjum fyrri pósti hérna þá er það svoleiðis að ef bíllinn er skráður ´95 eða nýrri þá verður hann að hafa hvarfakút.
Eldri bílar þurfa ekki að hafa hvarfakút.
Ég held að bíllinn hjá þér myndi fá skoðun bara með rör og einn endakút svo lengi sem hann væri ekki of hávær, er samt ekki alveg 100% viss á því.
Persónulega myndi ég benda þér á að hafa lítinn opinn kút í miðjunni og svo eitthvað þokkalegann "prump" kút í endann ef þú hefur áhuga á því.
Það að hafa opinn kút í miðjunni dempar aðeins "prump" hljóðið í lágum snúning og "prump" hljóðið verður "fallegra" í hærri snúning.
Þú ert sennilega með 1600cc eða 1800cc um 90 hp hjá þér, ekki rétt?
Þá er 2" er alveg meir en nóg. Og alls ekki fara í stærra en 2,5" - í sambandi við púst er stærra ekki alltaf endilega betra.
Í sambandi við síurnar, passaðu að kaupa þér ekki eitthvað ódýrt drasl. Frekar spreða í K&N, Green eða eitthvað álíka, getur kostað þig 10-15 kall með röri. (Getur velverið að það sé orðið dýrara) Þú getur keypt þér ágæt, ódýr rör uppí tómó (allavega gast það einu sinni) en ég myndi kaupa mér góða síu annarsstaðar (Nema þeir séu komnir með eitthvað gott stuff).
Og mundu að þótt þú setjir opið púst og cone síu þá ertu ekki að tala um 20+ hp aukalega, kannski 3 hp max - ef það. Finnur varla fyrir því, enn þú heyrir meira í því.
Í sambandi við pústverkstæði þá er það alltaf BJB í hafnarfirði, gott verkstæði og ef þú ert meðlimur í BMWkrafti færðu 10% afslátt af vinnu og vörum.
Svo mæli ég sérstaklega með Pústverkstæðinu ÁS nóatúni 2, hef reyndar ekki verslað við þá í dálítið langann tíma en þeir tóku nokkra bíla fyrir mig, fyrir nokkrum árum, og ef þú ferð þangað reyndu frekar að tala við unga gaurinn þar, hann hefur aðeins verið að pæla í svona opnun pústum og svona breytingum. Gamli littli karlinn, þótt hann sé fínn þá fussar hann og sveijar fyrir öllu svona pælingum og breytingum, svo eru þeir mjög sanngjarnir í verði, allavega voru það.