Þetta er svo týpískt dæmi um að menn grafi alltaf í það ólíklegasta sem gæti verið að.. Tími á mótor, þetta var bara hugsað að væri í lagi þar sem mótorinn var komin heima á pallettu með dynograph uppá x mörg hp.
tímamerkin á á ásunum eru svolítið lúmsk en ef maður kann á þau þá eru þau alger snilld.!!! þetta er nákvæmlega sama dótið og ég er með í s14 enda sami tímagír.!
Varðandi olíuhitamæli skil ég ekki hvað hefði getað farið þar sem það kom skammhlaup inní bíl á stýrispennuna fyrir kæliviftuna.
Sætti ég mig ekki við að ég sé nafngreindur með að hafa
skemmt hitamælinn þótt ég hafi lagt lögnina inní bíl og þessu skellt í gang í einhverjum æsing..

Svo var þetta litla slys alveg eins öllum að kenna þar sem allir voru með fingurna í þessu.
En gott að þeir Tauber menn seú búnir að finna úr þessu.!
Held þú eigir alvarlega skilið að fá alla þessa fola ofaní húddið loksins.
Verðið hjá þeim er BARA flott miðað við vinnu og þekkingu sem þeir hafa.
Snilld.