Kristjan wrote:
basten wrote:
fart wrote:
Ertu að tala um
"yfirborguðu strætóbílstjórana"?

Rútubílstjórana.... Ég er part time rútubílstjóri, það er MIKIÐ meira djobb en að vera flugmaður...
Commercial Flugmenn þurfa ekki að þrífa þoturnar, tala við farþegana (nema í neyð) taka farangurinn, stýra draslinu ALLAN tíma (ekkert autopilot í rútum) og þeir geta farið í miðri ferð og fengið kellingu til að færa sér kaffi og meððí...
(Einn sár,,,, djóóók)
Nákvæmlega... og þegar maður verður bensínlaus eða vélin bilar, þá bara leggur maður úti í kant með hazardinn á og bíður. Eða veðrið versnar, þá bara stoppar maður í Staðarskála, fær sér kaffi og meððí og bíður eftir að heiðin opni aftur. Slatti stressandi það
Þetta snýst ekki um það hversu sveittur maður er og þreyttur af erfiðisvinnu í lok dagsins.....
Snýst þetta ekki um það að vera að vinna við það sem maður hefur gaman af að gera og fá mannsæmandi laun fyrir það. Það er bæði sorglegt að vera að vinna vinnu sem manni leiðist og jafnvel ennþá sorglegra að vera að vinna vinnu sem manni finnst skemmtilegt að vinna og fá lúsarlaun.
Ég er það heppinn að vinna við það sem mér finnst gaman af að gera og fá allt í lagi borgað fyrir það. Ég er ekki á eitthvað megalaunum. Sölumaður í Parket og Gólf er með sömu laun útborguð og flugmaður hjá Icelandair!!! Viðskiptafræðingur í góðri stöðu getur gert miklu betur en ég. Ég hef t.d. ekki neinn séns á að vinna yfirvinnu og auka laun mín ef ég vil. Annars skiptir ekki máli hvað maður er með í laun, það skiptir meira máli hvernig maður fer með þau
En ég græt ekki. Munurinn á mér og gaurnum í næsta húsi er að hann vaknar klukkan 7 og fer í vinnuna. Ég fer bara að fljúga. Verst samt hvað vinnan slítur í sundur hjá mér frítímann!!!!
