Ég hef nú ekki verið barnanna bestur hérna í gegnum tíðina hvað prófmissir og sektir varðar.... tala nú ekki um að setja fyrsta bílinn á toppinn.... bara 6 tímum eftir að ég fékk bílpróf
En ég verð að ráðleggja þér að skrefa þig upp... ég lærði mikið á því...
VTi Civic & Sunny GTi er t.d. of mikið fyrir suma 17ára peyja
Svo má vel vera að þú sért aðili sem að getur átt 540i(iA) og getir hagað þér einsog maður. En það koma alltaf móment þar sem að maður verður að sýna sig og haga sér eins og asni. Þegar að á botninn er hvolft, viltu þá vera gaurinn sem að eyðilagðir bílinn þinn sem að þú ert farinn að bindast tilfinningalegum böndum, slasaðir kannski sjálfan þig og/eða aðra
BMW eru listalega smíðaðir bílar, allir með tölu, og það virðist vera að eftir E30/E32/E34 hafi Bæverjarnir farið að pæla aðeins meira í öryggisfactornum. Því að ég veit ekki um marga aðila sem að hafa labbað út úr Háorkubílslysi sem að gerist á 230kmh. (Að ótöldum veltunum) Ég þekki bara einn aðila, fyrir utan sjálfan mig sem að getur sagt sömu sögu
Það þarf samt ekki endilega að þýða að þú sleppir svona vel ef að eitthvað fer úrskeiðis. Og það þýðir alls ekki að þú verðir svo heppinn að drepa ekki einhvern annan eða slasa hann mjög illa. Við vorum einfaldlega MJÖG heppnir.
Hinsvegar er það STAÐREYND, að þegar að aflið í bílunum er orðið meira er orðið skemmtilegra að keyra þá
hratt, þeir eru fljótari af stað e.t.c.
Þessvegna finnst mér að aðili sem að er nýkominn með bílpróf og ætlar sér eitthvað annað en að vera að spyrna út um allar tryssur og vera keyrandi á hlið á hverju horni geti alveg eins keypt 520 eins og 540.
Því að ánægjan er sú sama á 90kmh. E39 er E39...
E39 520iA með sama aukahlutapakka og E39 540iA hlýtur því að gefa sömu ánægju, að aflinu undanskyldu
E39 ///M er hinsvegar allt önnur sinfonía
Öll þessi ritgerð... bara til þess að segja þér að passa þig...
Ég veit ekki hvort að þú tekur síðan nokkuð mark á því
