mér fannst nú frágangurinn á þessum kleeman sl ekkert sá flottasti sem ég hef séð,
tja carlsson sl55 hefur nú já verið með vesen, bæði bensínkerfi og þrálátt air bag ljós, hvorugt hafði nokkuð með carlsson breytinguna að gera,
en carlsson hlutirnir klikkuðu nú líka. enda er ég ekki að rýra orð herr alpina,
þýskir bílar bila bara mikið.. þetta eru hellings græjur og þurfa hellings viðhald,
ég er nú ekki jafn stórtækur og margir hérna en hef átt og rekið fjóra benza og 6 bimma.. og bmw-arnir hafa verið viðhaldsfrekari hjá mér, en voðalega mikið er þetta sama draslið að bila, slit í hjólabúnaði og pirrandi rafmagnspikkles,,
ég dundaði mér við að rífa og laga bimma á partasölu hjá félaga mínum í meira en ár og fór svo þaðan að vinna í ræsir við að þjónusta benz.. og margir mennirnir sem líma sig á annað merkið yrðu hissa þegar þeir sæju hversu mikið af dótinu í þessum bílum er það sama..
ég er nú meiri bmw maður en benz.. sona ef ég yrði að velja, en ég er samt ekki frá því að stundum sé ég fljótari að fá leið á bimmunum.. veit ekki hvað veldur,
það er ansi fátt sem slær út M bmw.. en AMG benz er ekkert slor heldur.. þannig lýt ég á þetta.. og reyni að njóta beggja bara
