Jónas wrote:
lawl, finnst þér ~35% skattur hár?
Skoðaðu löndin í kringum okkur.
Og ekki segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekkert gert, skoðaðu hagsöguna.
Nákvæmlega, hérna hafa þó næstum allir vinnu. Ef þú hinsvegar skoðar lönd sem hafa verið undir stjórn félagshyggju flokka eins og Svíþjóð þar sem sósíaldemókratar hafa ráðið í áratugi þá hefur atvinnuleysi þar verið um 10% Hvernig er það að gera eitthvað fyrir litla manninn? Laun þar eru mun lægri en hér en skattarnir hærri. Vissulega er ódýrara að lifa en gæðin á matvörum, húsnæði og slíku eru langt frá því sem þekkist hérna. Allavega kvarta ég ekki yfir sjálfstæðisfloknum, þeir koma þó einhverju í verk í staðinn fyrir að tala og lofa endalaust og koma engu í verk, nefndu eina vinstri stjórn hér á landi sem kom einhverju góðu til leiðar fyrir fólkið í landinu.
Varðandi flugvöllinn í Reykjavík sem vinstri menn vilja í burtu þá get ég ekki séð hvernig það er að hugsa um litla manninn því að ef hann yrði lagður niður þá myndi það bitna verst á öryrkjum og þeim sem þurfa að leita sér lækninga til höfuðborgarinnar. Reykjvíkingar virðast í þessu máli hafa gleymt því að þeir hafa vissar skildur sem höfuðborg! Hvað ætli það séu margir miljarðar sem streyma til borgarinnar vegna þess að öll stjórnsýsla og stofnanir eru þar? Eitthvað verða þeir að leggja á sig í staðinn.
_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur

--