saemi wrote:Stanky wrote:Treystir þú manni sem sér og les ekki samninga sem honum eru lagðir fyrir? Treystir þú Vilhjálmi? Þessum útsmogna lygahrappi sem þykist aldrei neitt vita og spilar alltaf góða gæjann?
Ég er nú alls ekki hlynntur 4 flokka stjórn, enda hefur svoleiðis aldrei gengið. En maður veit ekki hvort maður vilju Hárkollu Villa eða halda þessu vinstri/miðju bullshitti sem er núna.
Það ætti einhver að grípa inn í og stofna til nýrra Borgarstjórnarkosninga bara í Reykjavíkurkjördæmum, en ekki öllum sveitarstjórnum. (Ég held að það standi í lögum að Sveitastjórnarkosningar verða að fara fram allar á sama tíma).
Þetta stjórnleysi lagast ekki fyrr en árið 2010 þegar það verða nýjar Sveitastjórnarkosningar.
ps. Flugvöllurinn verður færður, alveg bókað... bara spurning hvenær. (Ekki það að ég hafi einhverja skoðun á því)
pps. Stjórnmál eiga ekki að snúast út á hefndir.
Ísland Besta Bananalýðveldi í heimi.
Ég treysti ekki stjórnmálamönnum nei, því miður. Sennilega eru einu stjórnmálamennirnir sem ég treysti til að fara eftir sannfæringu sinni Ögmundur og Pétur Blöndal. Það eru einu aðilarnir sem ég hef reynt að því að standa við orð sín og skoðanir í stað þess að reyna að halda sem flestum góðum og elta atkvæði.
En það að segja að Villi sé útsmoginn lygari og spila alltaf góða gæjann.... ertu ekki að rugla honum og Herra Hrappson saman ?????![]()
Nei en án gríns þá sé ég ekki að Villi sé neitt öðruvísi en hinir, hann er að spila alveg eins og aðrir stjórnmálamenn í kringum hann. Ég treysti honum betur en vinstri stjórn 4ra flokka já. Fyrir utan að hann er ekki að fara að taka við heldur Ólafur.
Það er ekki hægt að færa flugvelli. Það er bara hægt að byggja nýja. Það má vel vera að flugvöllurinn í Reykjavík verði lagður niður, en þá verður bara innanlandsflugið út frá Keflavík og mun stórminnka frá því sem er nú. Ég vona að slíkt gerist ekki, það væri mjög slæmt fyrir landsbyggðina sérstaklega. Það er nú kannski fullmikið að fara út í þá umræðu hér, en ég segi bara aftur að það er 95% af fólkinu sem er að tjá sig um flugvallarmálið sem hefur ekki vit á því sem það er að segja.
Stjórnmál eiga að sjálfsögðu ekki að snúast um hefndir, ... en þau snúast um völd!
SÆMA Í BORGARSTJÓRN!

