Komið info:
http://www.isafoldtravel.is/istourpage2.asp?ID=276
Mótorsportveisla 10. – 21. Júlí, Nürburgring, Suður-Þýskaland og Hockenheim.
Fi. 10. júlí: Flogið með Flugleiðum til Frankfurt og ekið til hotel Eifelstern við Bitburg með hefðbundinni vínsmökkun í Móseldal í leiðinni. Gist á Eifelstern í þrjár nætur (
http://www.eifelstern.com/).
Fö. 11. júlí: Bitburg skoðuð, og bjórverksmiðjurnar einnig. Farið út á braut um hádegisbilið og dvalið þar það sem eftir lifir dags. Tímanlega til baka á hótelið.
Lau. 12. júlí: Allur dagurinn á brautinni og fram á kvöld.
Su. 13. júlí: Pakkað saman og farið snemma út á braut og fylgst með keppninni. Ekið niður í Rínardal eftir að úrslit liggja fyrir, farið í Rínarsiglingu í kvöldhúminu til að ná sér niður eftir keppnina og endað á hóteli í bænum Boppard eða Bacharach rétt við ána, eða jafnvel í kastalahótelinu Schönburg ofan við Rín (
http://www.burghotel-schoenburg.de/) og gist eina nótt þar.
Má. 14. júlí: Ekið til Frankfurt um morguninn og skipt um áhöfn. Þeir sem ekki geta verið með allan tímann, hreinir trukkarar, taka vélina heim og hreinir múlu-menn koma um borð. Ekið til Stuttgart með viðkomu í tæknisafninu í Sinsheim eða Speyer. Gist í tvær nætur í Stuttgart.
Þri. 15. júlí: Mercedes-Benz safnið í Mercedesstrasse 100 í Stuttgart skoðað, og borgin að auki (
http://www.mercedes-benz.com/). Sama gisting.
Mi. 16. júlí: Farið í heimsókn í Porsche-verksmiðjurnar í Zuffenhausen í úthverfi Stuttgart. Ekið í eftirmiðdaginn til Allgäu í Suður–Þýskalandi, gist í tvær nætur í námunda við Kempten.
Fi. 17. Júlí: Audi-tjúnararnir “Abt” í Kempten heimsóttir fyrir hádegi (
http://www.abt-sportsline.de/) og BMW-Alpina í Buchlohe í eftirmiðdag (
http://www.alpina-automobiles.com/) . Til baka á sama hótel.
Fö. 18. júlí: Lagt upp snemma og ekið til Hockenheim. Komið á brautina um hádegisbilið. Fylgst með æfingum og sérkeppnum. Gist í Heidelberg, einni fallegustu borg Þýskalands, í þrjár nætur.
Lau. 19. júlí: Verið á brautinni allan daginn og fram á kvöld.
Su. 20 júlí: Stund sannleikans: Hver vinnur F1 á Hockenheim 2008? Það er nóg af góðum vínum úr hlíðum Odenwald til að gleðja sig við eða drekkja sorgum á skemmtilegum knæpum í Heidelberg á eftir, þetta síðasta kvöld ferðarinnar.
Má. 21. Júlí: Ekið til Frankfurt, flogið heim.
Mögulegur viðbótarpakki, sérsniðið Zakspeed-námskeið á Nürburgring (“Formula Intensive Training”):
Má. 14. júlí: Ekið til Frankfurt um morguninn og þeir sem koma frá Íslandi til að fara beint á námskeiðið aka ásamt hinum í hópnum með sér rútu til baka á Nürburgring og byrja fræðilega hluta nnámskeiðsins í eftirmiðdag. Kvöldverður á veitingahúsinu “Pistenklause” í Nürburg og gist á Dorint-keppnishótelinu við Nürburgring-brautina.
Þri. 15. júlí: Allur dagurinn við æfingar á brautinni. Eftir að námskeiðinu lýkur með viðurkenningarskjali fer hópuninn undir kvöldið með rútu til Stuttgart, innritar sig á hótelið og hittir fyrir hinn hluta hópsins. Sjá nánar á
http://www.zakspeed.de/the-motorsport-c ... php?id=375.
Áætluð verð (með fyrirvara um gengisþróun og hópastærðir): Flug, gistingar (að hluta til með kvöldverði), rúta og fararstjórn, aðgöngu- og brautarmiðar innifalið:
Mótorsportveisla í Þýskalandi: ISK 200.000 – 220.000,- á mann í tvíbýli.
- Þar af einungis trukkakeppnin: ISK 110.000 - 115.000,-. Aukakostnaður í einbýli: ISK 10.000,-
- Þar af einungis heimsóknir og F1 (seinni hlutinn): ISK 150.000 – 170.000,-
- Akstursnámskeið hjá Zakspeed á Nürburgring að auki: ISK 160.000 – 180.000,- með rútuferðum, gistingu og fullu fæði, miðað við 18 manns (hámarksfjöldi).
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...