bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 25. Jun 2025 23:43

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 34 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next
Author Message
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 00:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Fyrsta bréf Páls til okkar
Quote:
Ég sá að það var verið að deila Páli Óskari á TheVikingbay, og vil ég vinsamlegast biðja ykkur um það að fjarlægja það torrent tafarlaust! Páll Óskar er frændi minn, og hann á sko ekki mikinn pening þrátt fyrir frægð sína. Ég hef fengið nóg af ykkur, þið haldið að þið séuð æðri en allir aðrir og að þið getið leikið guði á ykkar ömurlegu torrent síðu



Í fyrsta lagi þá er nánast engin af þeim sem að "deila" þessum skrám með höfundarrétt á þeim og það er ömurlegt fyrir þessa tónlistarmenn sem minna eiga sín.


Ef þið ætlið að deila einhverju, deilið þá því sem þið hafið samið sjálfir, og eigið höfundarrétt á! Er ég nú frekar viss um að ekki neitt sem þið hafið gert sé þess vart að hlusta á.



Fjarlægið þetta strax, annars tala ég við Pabba minn, en hann er lögfræðingur og styður mig 100% í þessari baráttu gegn lágkúrulegum aumingjum eins og ykkur!



-Virðingarfyllst-



Páll Gunnarson, tónlistarnjótandi.


Svar okkar til Páls
Quote:
Eftir að hafa rætt þetta við kollega mína hafa þeir komist að því að taka þá ákvörðun að eyða plötunni af TheVikingBay. Við gerum okkur grein fyrir því að sala á Allt fyrir ástina hefur ekki gengið vel, þrátt fyrir að vera söluhæsta plata Íslands.

Héðan í frá mun TheVikingBay fjarlægja allar plötur Páls Óskars sem eru söluhæstar á Íslandi en ganga ekki vel í sölu.

....Djók.

Pabbi minn er pípulagningarmaður og ekki hikar hann við að hjálpa mér við pípulagnir í mínum húsum er ég hringi í hann, augljóslega myndi pabbi þinn hjálpa þér við að gera þig að fífli ef þú biður hann um það.

Kv, Unnar Geir, talsmaður TheVikingBay.




Svo annað bréf..


Fyrsta bréf CAOZ hf til okkar
Quote:
Unnar Geir Ægisson
Vallarhúsum 45
112 Reykjavík
Kt. 130189-2459

Á síðu sem þú ert skráður talsmaður fyrir (þ.m. ábyrgðarmaður) - www.thevikingbay.org er mynd okkar Anna og skapsveiflurnar aðgengileg. Myndin hefur augljóslega verið afrituð ólöglega úr sýningu Stöðvar 2 þann 1. janúar sl. Skv. niðurhalstölum á síðunni, þá hefur myndinni okkar verið halað 306 sinnum niður af síðunni ykkar.

Ég vil skora á þig að fjarlægja myndina af vefþjónum þínum tafalaust, því það liggur enginn dreifingarsamningur fyrir sem heimila ykkur að dreifa myndinni á ykkar netþjónum.

Jafnframt því að að gera kröfu um að fjarlægja myndina tafarlaust af vefþjóninum, gerum við kröfu um greiðslu fyrir niðurhalinu. Krafa okkar er byggð á leiðbeinandi smásöluverði DVD disks sem var að koma út á vegum Senu hf. 1.990 kr. pr. stk með virðisaukaskatti,(1.598 kr. án vsk). Samtals nemur krafa okkar 608.940 krónum með virðisaukaskatti. Þú færð 30 daga greiðslufrest á kröfuna. Verði krafan ekki greidd innan þess tíma, verður krafan send lögfræðingi okkar til innheimtu. Upphæðin óskast lögð inn á reikning 0111-26-000044, Kt. 620201-3320.

Virðingarfyllst,

Hilmar Sigurðsson
framkvæmdastjóri CAOZ hf.
Ægisgata 7
101 Reykjavík
Sími +354 511 3550


Svar okkar til CAOZ
Quote:
Sæll Hilmar.

Ég er talsmaður vefsins, ekki ábyrgðarmaður vefsins. TheVikingBay er hýst í öðru landi en Íslandi og er ábyrgðarmaður vefsins ekki staðsettur hér á landi.

Eftir að hafa lesið bréf þitt í gegn tek ég eftir nokkrum villum, og mun ég telja þær hér upp:

Ekkert efni er hýst á netþjónum TheVikingBay eins og þú heldur fram, þannig virkar ekki BitTorrent og ég hef ekki tíma til að útskýra fyrir þér hvernig BitTorrent virkar, því ég er afar upptekinn eins og er.

Þú getur ekki ætlast til þess að rukka TheVikingBay fyrir hvert niðurhal, þar sem í fyrsta lagi; Þú getur það ekki yfir höfuð, og í öðru lagi, "ef" þú gætir það, þá væri aldrei hægt að segja til hvort hver sá sem hlóð niður umtalaðari skrá hefði í raun keypt hana, svo ekki er hægt að tala um missir í sölu.

Þú getur farið eins langt og þú vilt með þetta, þú getur farið með þetta til hæstaréttar ef þú vilt, en þú munt ekki fá neitt frá mér því að ég tek ekki ábyrgð á þessum vef, og sá sem tekur ábyrgð fyrir honum er í fullum rétti.

Takk fyrir, ef þú vilt hafa frekari samband við mig, skaltu gera það í síma 823-1941.

Unnar Geir Ægisson, TALSMAÐUR TheVikingBay.




:lol: :lol: :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 00:35 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
Össs, þetta er bara orðið eins og hjá piratebay :lol:

_________________
BMW E46 318i Touring


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 00:39 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Helvítis glæpastarfsemi!

Ég dl aldrei neinu.

Fæ það bara hjá þeim sem að nenna standa í þessu :lol:

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 00:39 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 29. Feb 2004 03:40
Posts: 3976
It begins...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 01:12 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6772
Hehe bara gaman að þessu, þekki þetta pínu sjálfur er stjórnandi rip-torrent...

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 02:03 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 29. Oct 2006 22:38
Posts: 1035
til hvers að svara samt?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 02:36 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6772
Astijons wrote:
til hvers að svara samt?


Til að hafa gaman að þessum fíflum :lol:

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 07:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
er thevikingbay ekki hýst í svíðþjóð?

og er þetta ekki löglegt þar?

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 10:39 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sat 02. Dec 2006 18:16
Posts: 495
Location: RVK
Hannsi wrote:
er thevikingbay ekki hýst í svíðþjóð?

og er þetta ekki löglegt þar?


nei þetta var upphaflega hýst í hollandi, rússlandi og svíþjóð en núna eru þeir mestmegnis á rússneska servernum (skildist mér)

annars soldið broslegt bréfið um hann paulus

_________________
VW Passat '07 2.0tdi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 11:37 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6772
Kwóti wrote:
Hannsi wrote:
er thevikingbay ekki hýst í svíðþjóð?

og er þetta ekki löglegt þar?


nei þetta var upphaflega hýst í hollandi, rússlandi og svíþjóð en núna eru þeir mestmegnis á rússneska servernum (skildist mér)

annars soldið broslegt bréfið um hann paulus


það er aldrey að vita, geta verið að hýsa þetta útum allt og með backupa útum allt, tildæmis ef riptorrent síðan verður tekin einhverstaðar niður verður hún bara kominn aftur upp annarstaðar eftir korter :roll: :lol:

og smá OT, djöfulsins ruglaða bílaflota átt þú Kwóti! :shock:

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 11:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
bimma_frík wrote:
það er aldrey að vita, geta verið að hýsa þetta útum allt og með backupa útum allt, tildæmis ef riptorrent síðan verður tekin einhverstaðar niður verður hún bara kominn aftur upp annarstaðar eftir korter :roll: :lol:


Hvað gerir samt svona pjakkur eins og þú ef löggan fer í málið?

Ertu með fjármagn til að standa í einhverju veseni?

_________________
BMW E46 318i Touring


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 11:47 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6772
Aron Andrew wrote:
bimma_frík wrote:
það er aldrey að vita, geta verið að hýsa þetta útum allt og með backupa útum allt, tildæmis ef riptorrent síðan verður tekin einhverstaðar niður verður hún bara kominn aftur upp annarstaðar eftir korter :roll: :lol:


Hvað gerir samt svona pjakkur eins og þú ef löggan fer í málið?

Ertu með fjármagn til að standa í einhverju veseni?


Það er ekki einsog ábyrgðar maður síðunar sé undir 18 ára aldri 8)

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 18:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Astijons wrote:
til hvers að svara samt?


Frábært comment Ástþór...

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 19:05 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sat 02. Dec 2006 18:16
Posts: 495
Location: RVK
bimma_frík wrote:
Kwóti wrote:
Hannsi wrote:
er thevikingbay ekki hýst í svíðþjóð?

og er þetta ekki löglegt þar?


nei þetta var upphaflega hýst í hollandi, rússlandi og svíþjóð en núna eru þeir mestmegnis á rússneska servernum (skildist mér)

annars soldið broslegt bréfið um hann paulus


það er aldrey að vita, geta verið að hýsa þetta útum allt og með backupa útum allt, tildæmis ef riptorrent síðan verður tekin einhverstaðar niður verður hún bara kominn aftur upp annarstaðar eftir korter :roll: :lol:

og smá OT, djöfulsins ruglaða bílaflota átt þú Kwóti! :shock:


þakka þér fyrir :) svo er nýr bíll handa mér að koma á næstu mánuðum, er ekki alveg ákveðið hvað

_________________
VW Passat '07 2.0tdi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 18. Jan 2008 19:07 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Posts: 2674
Location: Reykjavík
Þú tekur hvort sem er alltaf C63 svo hafðu "þinn" bara einhvern Go-kart, Ariel Atom or something.......... :roll: :shock: :twisted: :(

_________________
1990 Benz 250D W124


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 34 posts ]  Go to page 1, 2, 3  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 31 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group