Málið sem ég er að reyna að benda á er ekki hvort hann er sekur eða ekki, auðvitað er hann sekur og á ekki að fá krónu bætta. Hins vegar virðist réttarkerfið stundum vera svona á íslandi. Ef löggan segir það þá gerðist það og sá sem löggan bendir á er dæmdur. Vitni? Sannanir? oft hundsað..
Ég veit um aðila sem hafa tapað máli með vitni sér til varnar og EKKERT á móti sér nema einn lögreglumann sem "hélt" að hann hefði séð bílnúmerið... Vitni voru hundsuð og þessi eini post-it miði sem löggan var með dugaði þeim til að vinna málið..
Bara svolítið skondið að sjá amerísku þættina (sem er kannski ekki alveg að marka en samt..) og bera það saman við íslensk mál. Þar eru menn saklausir þar til sekt er sönnuð, en í mörgum málum sem ég hef séð eru menn sekir þar til þeir geta sannað að þeir séu það ekki, og þá er "kannski" hlustað á þá en líklega dæmdir samt..
Svo Sæmi jú ég er auðvitað sammála þér, þetta fór eins og það "átti" að fara, en furðulegt að geta unnið svona mál án sannana nema það vanti jú slatta inní fréttina..