bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 25. Jun 2025 19:22

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 11 posts ] 
Author Message
PostPosted: Mon 14. Jan 2008 20:55 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 08. Nov 2006 11:46
Posts: 86
Location: SRT-4
Quote:
Kristján Einar Kristjánsson öðlaðist mikla reynslu í því sem drifið getur á daga kappakstursmanna í Manfeild-brautinni á Nýja Sjálandi um helgina. „Hann hlaut eldskírn í kappakstri í dag,“ sagði Matt Ogle tæknistjóri hans eftir mótið.

Kristján Einar varð fyrir því óhappi í fyrstu keppni helgarinnar að missa stjórn á bíl sínum í beygju svo hann flaug út úr henni og endaði á öryggisvegg.
Stundum er eins og beygjurnar séu ekki nógu víðar en hér slær Kristján Einar í engu af.


Bíllinn var tekinn í sundur milli keppna til að leita að bilun. Ekkert fannst fyrr en verið var að ljúka samsetningu hans á ný, en þá var of seint að gera nokkuð við.

Kristján Einar fór því út í startið á síðustu mínútunni sem hann hafði til þess og með bílinn í því ástandi sem hann var. Þá tók við lengsti kappakstur helgarinnar og í honum lenti hann í flestu sem upp getur komið í keppni.
Kristján Einar kemur inn á endamarkskaflann þar sem þjóðfánar keppenda blöktu við hún.


„Hann tók nokkrum sinnum fram úr keppinautum með tilþrifum, fór út úr braut, missti menn fram úr sér og náði fram úr þeim aftur. Hann fékk einnig bíl í hliðina á sér en snéri sig út úr því og sýndi gífurlega keppnishörku og góðan kappakstur frá upphafi til enda. Það var enginn byrjendabragur á Íslendingnum í grand prix-keppninni,“ sagði Ogle.

Vegna vélarbilunar í annarri umferð tímatökunnar á laugardag byrjaði Kristján Einar í 18. sæti eða aftastur. Hann lauk grand prix-keppninni í 13. sæti á tímanum 43:33,543 mín. og var aðeins 17,6 sek frá Andy Knight sem sigraði á 43:15,936 mín.


Um næstu helgi fara síðustu þrjár keppnir nýsjálensku Toyotaförmúlunnar fram í Taupo Motorpark-brautinni.
- tekið af mbl.is

allt að gerast hjá kappanum og alltaf að bæta sig.. hann var að keyra Grand Prix um helgina og er því fyrsti íslendingurinn til að keyra GP

Það sem gerðist í fyrri keppninni er að hann lenti utan í vegg og gírkassinn hans fór í rugl og einhvað læstist.

http://www.toyotaracing.co.nz/default.a ... racetype=5
úrslit

Image

Image[/quote]

_________________
E53 BMW X5 4.4
x
E39 BMW 525D
e36 BMW 318 Touring
e39 BMW 523 seldur
e46 BMW 318 seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 14. Jan 2008 21:33 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Sun 02. May 2004 13:27
Posts: 1258
Alltaf samgleðst ég honum innilega í hvert skipti sem ég sé fréttir af honum. 8) Þetta er frábært hjá honum!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 14. Jan 2008 22:03 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
harður af sér 8)

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 14. Jan 2008 22:46 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sat 02. Dec 2006 18:16
Posts: 495
Location: RVK
living the dream

_________________
VW Passat '07 2.0tdi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 14. Jan 2008 23:55 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 03. Mar 2006 16:21
Posts: 1442
er ég ennþá í team wanna-be :oops:

_________________
Kristján Einar
[url=http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=14304]
BMW 2002 Turbo ´75[/url]

gstuning wrote:
Ég og þú skulum gifta okkur svo ég geti komist á þennan 2002 turbo


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 14. Jan 2008 23:56 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Kristján Einar wrote:
er ég ennþá í team wanna-be :oops:


Alveg klárlega... ekki fyrr en þú kaupir þér hvítan E30 :wink: :lol:

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 15. Jan 2008 00:01 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 03. Mar 2006 16:21
Posts: 1442
arnibjorn wrote:
Kristján Einar wrote:
er ég ennþá í team wanna-be :oops:


Alveg klárlega... ekki fyrr en þú kaupir þér hvítan E30 :wink: :lol:


2002 torbu Oo

_________________
Kristján Einar
[url=http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=14304]
BMW 2002 Turbo ´75[/url]

gstuning wrote:
Ég og þú skulum gifta okkur svo ég geti komist á þennan 2002 turbo


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 15. Jan 2008 00:04 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Kristján Einar wrote:
arnibjorn wrote:
Kristján Einar wrote:
er ég ennþá í team wanna-be :oops:


Alveg klárlega... ekki fyrr en þú kaupir þér hvítan E30 :wink: :lol:


2002 torbu Oo


Á ekki afi þinn bílinn?

Það er allavega klárlega team wannabe að þykjast eiga bíl sem maður á ekki :lol:

En nóg með þetta bull...

Stendur þig vel þarna úti! 8) 8)

Haltu bara áfram að bæta þig!

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 15. Jan 2008 00:06 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 03. Mar 2006 16:21
Posts: 1442
arnibjorn wrote:
Kristján Einar wrote:
arnibjorn wrote:
Kristján Einar wrote:
er ég ennþá í team wanna-be :oops:


Alveg klárlega... ekki fyrr en þú kaupir þér hvítan E30 :wink: :lol:


2002 torbu Oo


Á ekki afi þinn bílinn?

Það er allavega klárlega team wannabe að þykjast eiga bíl sem maður á ekki :lol:

En nóg með þetta bull...

Stendur þig vel þarna úti! 8) 8)

Haltu bara áfram að bæta þig!


hann er allavega merktur mér, þótt gamli sjái um hann ennþá, ég hef engan tíma í þetta núna í ár allavega

og takk fyrir það

ég verð víst að gera betur til að komast í team-be

_________________
Kristján Einar
[url=http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=14304]
BMW 2002 Turbo ´75[/url]

gstuning wrote:
Ég og þú skulum gifta okkur svo ég geti komist á þennan 2002 turbo


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 15. Jan 2008 00:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Break a leg (samt ekki eins og Schumacher).

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 15. Jan 2008 01:58 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Fri 03. Mar 2006 16:21
Posts: 1442
zazou wrote:
Break a leg (samt ekki eins og Schumacher).

við notum oftast brake a wheel ;)

_________________
Kristján Einar
[url=http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=14304]
BMW 2002 Turbo ´75[/url]

gstuning wrote:
Ég og þú skulum gifta okkur svo ég geti komist á þennan 2002 turbo


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 11 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 35 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group