Jamm, staðan versnandi fer
Núna er ég búinn að skrölta á Skoda Felicia sem ég keypti á 30k frá því að ég seldi Zuna....
og ég vil helst keyra fram af kletti.
Ég er staðráðinn í að vera kominn með "nýjan" bíl innan við 3-4 mánaða en þá er vandamálið að velja sér bíl
Ég er kominn á bragðið með blæjuna, það er fátt skemmtilegra en að krúsa með hana niðri þannig að það er kostur sem að ég fúlsa ekki við
Hingað til hef ég verið að skoða bíla inn í 3 millu budget, ekki meira og auðvitað ákjósanlegt að fá mesta bíl fyrir þann pening. Helst er ég að leita mér að 2003 og nýrra
Uppi standa eftirfarandi bílar
Nissan 350z
Ford Mustang
BMW Z4
BMW E46 325 - 330 convertible
BMW X5
Dodge Charger
Chrysler 300
Mazda Miata
Já, margir af þessum eru víst algerir haugar þ.e.a.s þessi bandarísku en þeir eru bara með eitthvað appeal sem að laðar að sér, ég get ekki útskýrt hvað það er
Allavega, það sem að ég er að spá hvort að einhver hérna hafi prufað eitthvað af þessum bílum og hefur samanburð eða þá hafi aðrar tillögur um bílakaup sem ég hef ekki skoðað
Takk fyrir
Óskar