grettir wrote:
Af hverju ætti maður að "verja þennan lýð"?
Lýður er bara lýður, sama af hvaða þjóðerni hann er.
Það sem svona útlendingahatarar eins og þú verður að átta þig á er eftirfarandi:
* Íslendingar eru rétt rúmlega 300 þúsund. Það er innan skekkjumarka í manntali jarðarbúa. Þegar þú talar um útlendinga ertu að tala um jarðarbúa, næstum alla jarðarbúa. Af hverju eru Íslendingar eitthvað merkilegri en jarðarbúar?
* Glæpamenn eru glæpamenn og ef þeir brjóta af sér þar sem þeir eiga ekki ríkisborgararétt á að sjálfsögðu að vísa þeim úr landi. Ekki kenna öllum öðrum af sama þjóðerni um glæpinn. Íslendingar eru að brjóta af sér um allan heim, flytja inn fíkniefni, nauðgandi og stelandi peningum. Viltu að þér verði kennt um þeirra glæpi af því að foreldrar ykkar eiga það sameiginlegt að hafa gotið ykkur á sama skerinu?
* Ef þú ert ekki betri í þínu starfi en svo að það er ráðinn annar í staðinn, ekki væla yfir því að hann hafi verið útlendingur (jarðarbúi). Finndu eitthvað annað sem þú ert betri í.
* Ef þú ert rekinn því vinnuveitandi þinn ætlar að spara með því að ráða ódýrari starfsmenn, stofnaðu þá þitt eigið fyrirtæki og farðu í samkeppni við vinnuveitandann. Ráddu ódýra starfskrafta úr flokki jarðarbúa og settu fyrrverandi vinnuveitanda þinn á hausinn.
* Langar þig að vinna og læra í öðru landi? Afhverju ættu aðrir ekki að fá sömu tækifæri hér á landi?
Einstaklega vandað svar.
Íslenskt líf er ekki merkilegra en útlenskt líf. Ég hef hvergi sagt að einhver þjóð sé verri en önnur.
Að vísa mönnum úr landi virðist bara ekki gerast hér á Íslandi! Og ég er ekki að kenna öllum austur evrópubúum um glæpi sem þeir hafa framið. Ég er að kenna austur evrópskum glæpamönnum um glæpi sem þeir hafa framið á Íslandi.
Ég er fullur sjálfstrausts í mínu starfi og hef engar áhyggjur af því að það fynnist útlendingur sem er betri en ég í mínu starfi. Laun byggjast á framboði og eftirspurn. En sem betur fer virðast (flestir) Íslendingar vera búnir að átta sig á því að ef byggja á hús (mín starfsgrein) eftir Íslenskum stöðlum og kröfum þá er betra að hafa mann menntaðan á Íslandi í því.
Ekki tala eins og að stofna fyrirtæki sé ofboðslega auðvelt mál.
Jú það ættu allir að fá sama tækifæri og ég, maður með hreina sakaskrá.