Hvað með alla pólverjana sem eru að leggja menn (þmt nafntogaða íþróttamenn) í einelti niðri í bæ umhelgar? (kaldhæðni að segja pólverjana í stað íslendingana þannig að menn skilji þetta rétt)
Alþjóðahús tók út tölfræði frá Hagstofunni fyrir áramót sökum þess að svona "sögusagnir" gengu fjöllunum hærra.
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... hlydnustu/
Quote:
Hlutfallslega fleiri Íslendingar voru ákærðir fyrir glæpi árið 2006 en Pólverjar sem búsettir eru hér á landi. Ef í fjölda ákærðra er deilt með fjölda þeirra sem skráðir eru búsettir hér árið 2006 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands, er hlutfall ákærðra lægst hjá Pólverjum.
Erlendir ríkisborrgarar sem ákærðir eru fyrir glæpi eru sumir ferðamenn og því má ætla að hlutfall ákræðra með erlendan ríkisborgararétt sem búsettir eru hérlendis sé enn lægra.
Formaður samtaka Pólverja á Íslandi Witek Bogdanski telur hægt að rekja fordóma til fjölmiðla. Formaður blaðamannafélagsins er ósammála því. Einar Skúlason í Alþjóðahúsi segir alltaf mesta fordóma gagnvart þeim hópi innflytjenda sem mest er áberandi hverju sinni. Amal Tamimi telur stéttaskiptingu í viðhorfum til útlendinga eftir því hvort föðurlönd þeirra eru rík eða fátæk.
Það þýðir s.s. ekki að 2007 hafi ekki "versnað " varðandi glæpatíðni innflytjenda á íslandi.
N.B. ég er alls ekki að reyna að verja einn eða neinn. Svona glæpur er gersamlega óverjandi, sem og að aka á einhvern og stinga af. Almennt eru glæpir óverjandi.
Ég er á því að Ísland er ekki að vanda valið nógu vel varðandi innflytjendur sbr. útþennslustefnu stjórnvalda síðustu ár og skort á allskonar starfsfólki þess vegna.