HelgiPalli wrote:
En það besta við þennan bíl er að þegar hann kemur á markað mun e39 M5 örugglega falla töluvert í verði, og menn eins og Alpina, Sæmi o.fl. fara vonandi að flytja þá inn

Þetta er nú eitthvað sem hefur verið rætt á spjallinu, þ.e.a.s. verðlagsbreytingar á eldra módeli með tilkomu nýs.
Ég hef ekki trú á því að E39M5 komi til með að falla töluvert í verði - í raun hef ég ekki trú á að hann falli nokkurn skapaðan hlut í verði - a.m.k. eingöngu fyrir sakir tilkomu E60.
"Gamli" M5 (E39) er og verður einn allra eftirsóknarverðasti sportlegi 4ja dyra bíll á markaðnum. Það hefur sýnt sig og sannað að hann gefur nýjum keppinautum í þessum flokki (RS6, E55,XJR) ekkert eftir þrátt fyrir háan aldur!
Tilkoma nýja E60M5 kemur ekki til með að rýra verðgildi E39M5, einn og sér verður hann eftir sem áður stórkostleg bifreið.
En það er svo annað mál hvort að það styttist ekki í að spjallfélagar fari að flytja E39M5 til Íslands - ef ekki á forsendum verðlækkunar þá e.t.v. á þeirri forsendu að hann sé skyndilega orðinn klassíker
