BMW 525i 1991 módel til sölu (E-34 M50)

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

Postby HelgiPalli » Tue 23. Sep 2003 17:19

Það er ekki auðvelt að finna betri bíl fyrir þennan pening held ég.
HelgiPalli
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 297
Joined: Sun 27. Jul 2003 20:34
Location: 101

Postby saemi » Tue 23. Sep 2003 17:34

Jói, það er alveg hárrétt það sem þú ert að segja með þennan á 550 þús með leðri. Þetta hljómar eins og fínn bíll og góður díll, en ég hef náttúrulega ekki séð hann.

En þetta með sjálfskiptinguna og að hann sé verðmætari þess vegna get ég alls ekki verið sammála um. Það er rétt þegar þú ert að tala um nýja bíla að þá kostar ssk meira. En þegar þú ert kominn í þetta gamla bíla, þá skiptir það ekki baun.

Ég vil leyfa mér að efast um að ssk E34 sé verðmeiri en bsk. Þegar talað er um eftirspurn, þá verður líka að taka tillit til framboðs.

Það er bara eitt sem ræður verðinu á hlutum og það er hversu mikið einhver er tilbúinn að borga fyrir gripinn. Þó svo að það séu 20 sjálfskiptir bílar á markaðnum og flestir vilji þannig bíl, þá þarf ekki nema einn kaupanda að beinskiptum bíl til að hann seljist frekar en ssk bílarnir!

Hvaðan hefur þú það að það sé meiri eftirspurn eftir ssk E34? Það eru margfalt fleiri þannig bílar á markaðnum, en það er ekki það sem ræður eftirspurninni.

Varðandi E60 að hann komi til með að lækka verðið á E34, þá get ég ekki fallist á það í þessu tilviki. Ég hef verið að fylgjast grannt með verðinu á E39 bílunum og þeir virðast halda sínu mjög vel úti í þýskalandi eftir að sá nýji kom á markaðinn. Þó þeir eigi örugglega eftir að lækka samt. En þegar þú ert kominn niður í E34, þá gildir einfaldlega ekki þetta lögmál með að ný týpa lækki eldri týpuna svona mikið.

Það sem gerir það að verkum að E39 lækkar í verði, er að fólk sem ekur um á nýjum bílum, segjum þangað til hann verður svona 3-6 ára gamall, selur E39 bílinn sinn og verslar nýjan E60. Þá verður offramboð á E39.

EN þá fylgir ekki næstum eins stór hópur sem fer af E34 og verslar E39. Það er allt öðruvísi kaupendahópur að E34 bílum. Það er ekki þetta fólk sem endurnýjar stöðugt, heldur fólk (eins og við flestir) sem grípur tækifærið þegar þessir bílar eru orðnir það gamlir að við höfum efni á að kaupa þá. Við kaupum þessa bíla ekki til að eiga þá í 3-6 ár og endurnýja svo með miklum afföllum! Þessvegna nær ekki þessi "affalla-bylgja" lengst niður "bílastigan".

Þegar við erum komnir svona neðarlega í verði á bílum (E34 1990 módel), þá einfaldlega verður "affallakúrfan" miklu flatari og þessi áhrif verða svo hrikalega lítil þegar nýtt módel kemur á markaðinn, ef þau finnast þá yfirleitt. Þessvegna leyfi ég mér að efast um að E60 hafi nokkur áhrif á E34 bílana að ráði. Kannski örlítið 92-94 módelin, en varla samt.

Sæmi spekúlerant
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby GHR » Tue 23. Sep 2003 22:45

Varstu nokkuð búinn að redda myndum af bílnum :?:
Mig langar rosalega að sjá hann :biggrin:
GHR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1690
Joined: Sat 07. Sep 2002 00:45
Location: BIRK

Postby saemi » Tue 23. Sep 2003 23:02

Myndirnar eru alveg að koma.. ég er bara veikur, hef ekkert farið út í dag :(((

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Haffi » Wed 24. Sep 2003 03:38

Sjáum til hvað lánadrottnarnir segja :shock:
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Jón Ragnar » Wed 24. Sep 2003 06:48

ég ætla að svíkja það að kaupa mér bmw núna og kaupa mér turbo bíl... dont worry samt, kaupi BMW í vor ;) held samt að þetta sé klikkaður bíll, sæmi klikkar aldrei á því :D :lol:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby bebecar » Wed 24. Sep 2003 10:54

Fyrir mína parta þá verð ég að taka undir með Dúfunni og Sæma með að BSK sé mun eftirsóknarverðara í þetta gömlum bílum. Ég er mjög smeykur við sjálfskiptingar þegar þær eru komnar á þennan aldur og akstur og BSK bíll er að mínu mati miklu skynsamlegri kostur.

Mig langar reyndar all verulega í þennan bíl af Sæma, en er blankur og er á E21 sem stendur (sem ég tími reyndar varla að nota í vetur).

Varðandi afföll og verðfall. Þá held ég að E60 hafi ENGIN áhrif á E34 verð - ekki nokkur.

Hinsvegar er ég viss um að E39 á eftir að falla mikið í verði eftir einsog 1-2 ár þegar flóð innflutnings hefst hingað til lands. Á sama tíma myndi ég búast við lækkunum á yngri E36 bílum og þá koma margir skemmtilegur möguleikar til greina. Meðal annars Sedan M3 og 328 Touring!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby fart » Wed 24. Sep 2003 11:45

B&L eru nú heldur betur búnir að refsa E39 eftir Nató skandalinn.

E39 523i kostar minna en E36 323i skv bílgreinasambandsbullinu.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bebecar » Wed 24. Sep 2003 12:32

Já, ég held samt að þetta hafi nú jákvæð áhrif... Mikið af þessum bílum eflaust seldir til fólks sem annars hefði ekki keypt BMW.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Guest » Wed 24. Sep 2003 15:14

Jæja, myndir??? :hmm:
Guest
 

Postby Jói » Wed 24. Sep 2003 15:39

Ég ofmat áhrif e60 á e34, það er frekar langsótt að e60 hafi einhver veruleg áhrif á þetta gamlan bíl sem e34 er. E34 er nú samt alltaf að lækka í verði, og markhópurinn verður ekki eins almennur núna þegar hann eldist svona áberandi hratt eins og núna þegar hann verður allt í einu 3. nýjasta fimman í stað þess að vera næstnýjasta. Maður sér það alveg að hann virðist eldast óvenjuhratt við hlið þessa glænýju bíla, en það lækkar ekki verðið að neinu viti.

Saemi wrote:Það er bara eitt sem ræður verðinu á hlutum og það er hversu mikið einhver er tilbúinn að borga fyrir gripinn. Þó svo að það séu 20 sjálfskiptir bílar á markaðnum og flestir vilji þannig bíl, þá þarf ekki nema einn kaupanda að beinskiptum bíl til að hann seljist frekar en ssk bílarnir!


Það er nú sennilega rétt.

fart wrote:B&L eru nú heldur betur búnir að refsa E39 eftir Nató skandalinn.

E39 523i kostar minna en E36 323i skv bílgreinasambandsbullinu.


Skv bílgreinasambandinu kostar bíllinn hans Saema 0 kr.
Jói
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 342
Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Location: Reykjavík

Postby saemi » Wed 24. Sep 2003 16:15

Jói wrote:Skv bílgreinasambandinu kostar bíllinn hans Saema 0 kr.



Muhahahahahaahah.. já.. ég ætti kannski að fara að huxa minn gang og lækka mig með hliðsjón af því!

Myndirnar eru komnar, eru í fyrsta póstinu.

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby HelgiPalli » Wed 24. Sep 2003 19:19

:shock:

..ætti maður að þora útí banka? :?
HelgiPalli
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 297
Joined: Sun 27. Jul 2003 20:34
Location: 101

Postby Haffi » Wed 24. Sep 2003 19:24

NEI 1!! því að ég .... eða bróðir minn ætlar að tala við bankann.
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby BMWmania » Wed 24. Sep 2003 19:39

bla gleymdi að skrá mig inn............var að segja SWEEET BÍLL :drool:
Mína langar í :D
BMW-Sheer Driving Pleasure :D
BMWmania
Kassabílstjóri
 
Posts: 184
Joined: Sun 20. Jul 2003 16:52

PreviousNext

Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 22 guests