ValliFudd wrote:Elnino wrote:Hvað endist bmw lengi? hvað endist yaris lengi ?

Við eigum yaris, árg. 99.. 1,0 powahhh!!! líklega einhver skynjari bilaður þar sem hann er mis kraftlaus og eyðir 11 á hundraði
á síðasta ári hefur hann nú verið mun duglegri í að bila en BMWinn minn

EN þetta eru litlar og einfaldar bilanir, alternator o.fl.. svo það er hægt að laga þetta allt úti á plani bara

En ég verð nú samt að segja að ég treysti meira á BMWinn ef á að fara út á land.. Treysti þessum Yaris ekki skít..
Þar sem eigandi er þegar hættur við að selja þá er þetta off topic í góðu,,
Varðandi Yaris..
Ég keyrði Yarisinn hennar mömmu eitt skipti upp í bústað til okkar, var einn í bílnum og var aðeins að prufa hann á mölinni. Þetta er leiðinlegasti og hættulegasti bíll sem ég hef keyrt á malarvegum!! Bíllinn yfirstýrði svo svakalega að það var ekki einu sinni fyndið, ég hafði enga stjórn á druslunni að aftan, hann bara rásaði eins og og ég veit ekki hvað..
Og já veghljóð er alveg killer á möl á þessum dollum.