Það er best að klára gera upp þessa mögnuðu ferð sem farin var snemma í summar.
Lét vera af því að versla mér aðra Lanciu á meðan á dvölinni stóð,
var hún að sjálfsögðu gul.
Hérna kemur sagan í máli og myndum um þetta best geymda leyndarmál.
Einn góðan veðurdag þegar ég nennti ekki niður á hring með strákunum datt mér í hug að kíkja á bílasölu sem er staðsett í nágreni hringsins,
sá þar mér til mikillar undrunar þessa heiðgulu Lanciu sem ég var einfaldlega að kaupa.
Tók smá rúnt til að reyna finna kúl stað fyrir myndatöku,eftir að hafa rallað um sveitir Nuba endað ég við sjálfan Nubakastala og var hafist
handa við að mynda.
Eftir nokkra ramma var kallað á mig ,ég leit í kringum mig en sá engan
gæti verði að reyna ná sambandi við mig.
Eftir smá stund varð ég var við skarkala við útidyrahurð kastalans og var mér litið upp og sá mér til mikillar undrunar risastórann dreka.
Hann kynnti sig sem Drako og sagðist ekki hafa látist við gerð myndarinnar Dragonheart og vildi endilega fá að skoða Lanciuna örlítið betur.
Allt í einu sagði Darko mér að hlaupa inn í kastalann því von væri á slæmum félagsskap.
Eftir örskamma stund var kastalinn umkringdur drekabönum sem sýndu Lanciun meiri eftirtekt en Drako.Var mér brugðið
við að sjá þessi villimenni en Drako sagði mér ekki að óttast því hann ætti ás í bakhöndinni.
Eftir hvellt flaut frá Drako varð ég var við mikla ókyrrð frá skóginum og sá mér til endalausrar undrunar risastóran kött koma hlaupandi í átt að
kastalanum, tóku þá drekabanarnir til fótanna og hurfu inní skóginn.
Eftir smá útskýringar komst ég að því þetta væri hinn víðfrægi Bæverski skógarköttur Zeta.........
Nú var tekið meira af myndum af tækinu og Darko....
Eins og menn eiga vita er besta að geyma svala gula bíla í útlöndum til þess að passa uppá kúlfactorin rjúki ekki upp í það endalausa hér heima.
Varð það til þess að Drako bauðst til að geyma Laciuna fyrir mig í Nubakastala og bíður hún mín þar til sumars.
The End.
_________________
Sæmundur Eric.
Lancia Delta HF Integrale Evo I - Saab 900aero - Mazda 323 GLX.
