Steini B wrote:
Nú er ég alveg hættur að skilja þetta..
Þjófavörnin kom til landsins á mánudag, en ég fæ hana ekki sökum þess að hún er ekki CE merkt...

og enginn möguleiki að fá undanþágu, þrátt fyrir ad þetta er það nákvæmlega sama og fæst í búð hérna heima...
Mér finnst þetta bara fáránlegt!
Ég var akkúrat að klára svona mál. Ég keypti mér á Ebay fjarstýringu með lykkli fyrir E32.
Heldurðu að helvítins tollurinn sendi mér ekki bréf þar sem stendur varan fæst ekki afhent því á hana vantar CE merki... garg þetta var ekki rétta leiðin til að byrja daginn.
Ég set mig í samband við póst og fjarskiptamálastofnun og fer eitthvað að tuða í þeim. Þar er mér tjáð að þeir þurfi að gefa grænt á þetta til að koma þessu til landsins.
Eftir töluvert þras og tíma þá sendi ég honum einhverjar tækniupplýsingar um fjarstýringuna sem leiðir til þess að hann gefur grænt á dótið sökum þess að þetta er IR infrarautt og því ná ekki þessi asnalegu CE merkis lög yfir það. Ég klóraði mér auðvitaið í hausnum en rauk í tollinn og fékk vöruna afhenta þó ég þyrfti nánast að stafa þetta ofan í tollarann. Og það fyndnasta við þetta að eftir allt ruglið þá var ég hvorki rukkaður um Vsk. eða toll af þessu vítis tæki.