í gær ætlaði ég að kíkja við á stjörnuhitting.. sona þar sem ég átti benz í þetta skiptið,
meðan ég var að smúla saltið af honum drapst á honum.. ég alveg

og startaði aftur og ætlaði bakka út og þá dó græjan og harðneitaði að fara í gang..
þá var bara að ýta bílnum inn aftur.. en blessunarlega bilaði hann hálfur inn um hurðina á verkstæði ræsirs,
það var dauður í bílnum crankshaft sensor (stöðuskynjari f/sveifarás)
hann var rifinn úr og nýr settur í, alveg einstaklega leiðinleg aðgerð.. skynjarinn gengur ofan í blokkina aftan á henni bakvið vinstra heddið..
kíkti aðeins á blásarann og fannst pakningar og annað alveg meiga fara verða endurnýjaðar, og er búin að panta allar pakningar á blásaran ásamt ventlalokspakningum og nokkrum hosuklemmum og smotterýi,
ég veit ekki hvort það er einhver tenging á milli.. en ég var búin að verða furða mig á hversu mikið meira heyrist í blásaranum á þessum en hinum c32 bílnum sem ég var á.. gæti verið að sjúga aðeins með, en svo er samt ekki að sjá þar sem bíllin gengur perfect og er alveg að skila öllum hestöflunum sem hann á að gera, en það er bara betra að hafa þetta nýtt,
bíllin er nýkomin úr undirvagns og bremsu gegnumtekst og yfirferð, þannig að bifreiðin er alveg "spikk og span"
hérna sést vélasalur í C32, eins og sést er alveg verulega pakkað..
