Bíllinn er með 3l bensínrokk sem er alveg í það máttlausasta. Voða æsingur í fyrsta gír svo gerist ekkert eftir það. Sándar samt flott. Hann er vel búinn, olíumiðstöð, navi og eitthvað fleira.
Hef haft lúmskt gaman af því að sjá alltaf í hvaða hæð ég er
Ég var 0 spenntur fyrir þessum bíl þegar ég tók hann uppí og fór bara að keyra hann af því að það púnteraði á neyðarhylkinu. Finnst þetta óttalegur kanabíll einhvern vegin. Svo þegar ég fór að leika mér í snjónum [DSC OFF!] áðan fór álitið aldeilis að hækka. Ekkert mál ef nógu hált er að keyra þetta alveg á hlið (Dóri, vetraropnun?
Niðurstaða, fínn bíll fyrir þá sem þetta fíla, bara gaman í hálku. Ekki minn tebolli (nema í hálku).
ps. hvar er skemmtilegast að leika sér eftir snjókomu eins og í kvöld? Ég tók Smárahverfið ofan 'lindarinnar áðan. Saltdjöfullinn hefur ekki haft viðkomu þar enn.
Já og hann er til sölu fyrir eitthvað slikk + yfirtöku fyrir áhugasama

