Hver er besti framleiðandinn á bónum fyrir bíla?

Hér skal spjalla um BMW.

Hver er besti framleiðandinn á bónum fyrir bíla?

Auto Glym
13
30%
Mothers
4
9%
Sonax
8
18%
Turtle Wax
5
11%
Annað
14
32%
 
Total votes : 44

Hver er besti framleiðandinn á bónum fyrir bíla?

Postby BMW 318I » Sun 21. Sep 2003 14:21

Ég var að pæla hvað framleiðandi hafi reynst ykkur best?
'98 Image 316i
User avatar
BMW 318I
Getawaybílstjóri
 
Posts: 537
Joined: Mon 28. Apr 2003 11:05
Location: Kópavogur

Postby gstuning » Sun 21. Sep 2003 14:51

Sá sem er almennt talað um er Zymol

ekki til á Íslandi
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby saemi » Sun 21. Sep 2003 14:58

Jamm, ég keypti mér zymöl í vor, hef bara ekki prufað það ennþá!

Það er mjög feitt (svipað og mjallarbónið) en á víst ekki að skilja eftir sig nein ský (ásamt því að vera ekki eins skemmtilegt að vinna og mjallarbónið :wink: )!

Annars ef ég er að bóna, þá er ég farinn aftur að nota gamla mjallarbónið, ber það bara á og svo eitthvað annað bón yfir það. þá er sæmilegt að vinna þetta og endingin er alveg 4-6 mánuðir. Ég nenni ekki að bóna í hverri viku sko.

Er líka nokkuð ánægður með auto-glym. Það er tiltölulega endingargott og skilur ekki eftir sig lit á gúmmí og þessháttar eins og sum bón sem eru hvít og maður þarf að nudda af öllu gúmmí og plasti :evil:

Nota líka color back (massabón) mikið þegar ég er að vinna eitthvað í bílum sem eru mikið skítugir eða í lakkviðgerðum.

Sæmi
Last edited by saemi on Sun 21. Sep 2003 15:03, edited 2 times in total.
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Alpina » Sun 21. Sep 2003 14:59

Ég held að ég sé FULLKOMNLEGA sammála gst+saemi
þetta er með því bezta sem völ er á
Sv.H
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby SE » Tue 23. Sep 2003 00:14

Það besta sem ég hef notað er Auto Glym.
Ég nota Auto Glym - Super Resin Polish ( með rauðum miða ) og svo Auto Glym - Extra Gloss Protection yfir ( með gylltum miða ). Árangurinn er mjög flott háglans áferð - mæli með því.
SE
Porsche 911 Carrera 3.2 ´85
Mercedes Benz ML 270 CDI ´00

Jeremy Clarkson wrote:It's pouring down with rain because not enough people have Range Rovers.
SE
Kassabílstjóri
 
Posts: 158
Joined: Sun 13. Jul 2003 22:43
Location: Kópavogur

Postby Duce » Tue 23. Sep 2003 00:21

Concept og Kent
Outback 2003
Sixpensari og Pípa

_________________
Duce
Kassabílstjóri
 
Posts: 188
Joined: Fri 19. Sep 2003 00:52
Location: -101-

Postby jth » Tue 23. Sep 2003 00:56

Það er almennt talið að gervi- og fjölliðuefni endist betur heldur en hreint Carnauba vax. Félagar okkar á bmwm5.com virðast mjög hrifnir af Zaino efnum (flókið ferli, mörg efni) og "Klasse All in one".
http://www.m5board.com/vbulletin/showthread.php?s=&threadid=30661
Þetta kemur sjálfsagt að litlu gagni þar sem ég efast stórlega um að þessi efni fáist heima á Íslandi.

Ég hef prófað mig heilmikið áfram með AutoGlym, fór sömu leið og SE (Super Resin Polish og fylgdi eftir með Extra Gloss Protection). Næst mjög góður árangur með því, en öfugt við marga aðra fannst mér ekki sérstök ending á því. Ágæt, en alls ekkert sérstök (og alls ekki miðað við verðið á AutoGlym vörunum).

Til að halda svörtu stuðaralistinum góðum var reyndar mjög gott að nota AutoGlym "Bumper Care".

Gerið grín að mér eins og þið viljið :wink: , en á BMW-inn var ég hrifnastur af Turtle Wax bóni sem fæst á Skeljungsstöðvunum. (Það var á tilboði f. u.þ.b. 2 árum og kostaði brúsinn innan við 300 kr. - var það aðalástæðan f.að ég prófaði það fyrst).

Ég var vanur að nota þetta bón í miklu magni, og bóna oft. Þó svo að AutoGlym hafi verið "milt" bón þá var TurtleWax-ið nánast algjörlega laust við hreinsiefni, ekki vottur af terpentínu eða annari leysiefnalykt af því. Mér fannst það skipta miklu máli að nota milt bón á nýtt lakk og hélt mig því við TW með ágætis árangri. Bíllinn var handþveginn a.m.k. 1 sinni í viku og sjaldnast liðu meira en 3 vikur milli bón-áferða.
User avatar
jth
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Fri 29. Nov 2002 17:49
Location: NY

Postby bebecar » Tue 23. Sep 2003 09:46

Ég bónaði um helgina með Turtle Wax Extreme og það kom verulega á óvart... frekar auðvelt að vinna það og perlar eins og maður hafi sonaxað bílinn. Svo er mér sagt að það endist vel og við sjáum til með það. En það er frekar ódýrt bón þannig að ég mæli með því og ég held ég muni halda mig við það frekar en Sonax þegar ég er að flýta mér.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby hlynurst » Tue 23. Sep 2003 10:32

Það besta sem ég hef prufað hingað til er Concept bónið... ótrúlega gott bón. En ég hef samt ekki prufað allar þær tegundir sem þið teljið upp þannig að maður getur nú ekki sagt að það sé besta bónið að svo stöddu. :)
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Leikmaður » Tue 23. Sep 2003 10:56

...concept bónið virkar tussuvel (þetta bleika sem fæst hjá íslakk)!!
Veit ég líka til þess að maður sem að á stóra bónstöð í bænum notar það sem algjöra undirstöðu!!
Síðan er ekkert eins og´að nota sonax þegar maður er í tímaþröng :D
Leikmaður
Getawaybílstjóri
 
Posts: 989
Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Location: Seoul, South-Korea

Postby bebecar » Tue 23. Sep 2003 13:00

Hvar fæst þetta Concept bón?

Já Sonax er náttúrulega súper þegar maður er að flýta sér...

Svo hef ég líka notað BMW bón og það er nokkuð gott bón, veit ekki hvaða tegund það er samt. Ég hef líka notað leðurhreinsi frá BMW og hann var súper!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Benzari » Tue 23. Sep 2003 13:07

bebecar wrote:Hvar fæst þetta Concept bón?

Já Sonax er náttúrulega súper þegar maður er að flýta sér...

Svo hef ég líka notað BMW bón og það er nokkuð gott bón, veit ekki hvaða tegund það er samt. Ég hef líka notað leðurhreinsi frá BMW og hann var súper!


Minnir að Concept fáist hjá Orku - Snorra.G. ,einnig Meguillars( or something like that)
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby Logi » Tue 23. Sep 2003 13:45

Ég hef nú notað Sonax nokkuð reglulega á mína bíla og verið ánægður með það. Mér hefur hins vegar ekki fundist það vera eins auðvelt í vinnslu á M5 eins og á öðrum bílum sem ég hef átt. Það er kannski svarti liturinn ég veit það ekki.

Ég hef síðan notað Ultra-Gloss annað slagið, mér hefur alltaf fundist það vera svona ALVÖRU bón.

Síðast þegar ég bónaði M5 þá byrjaði ég á að fara með Sonax lakkhreinsi á hann. Síðan setti ég á'ann Mjallarbón (notaði þriggja tusku aðferðina) og er mjög sáttur við útkomuna :D . Var smá stund að ná tökum á bóninu, en síðan fannst mér bara helv. gaman að bóna með því!
2003 BMW 530i - Titan Grey Metallic
2011 Porsche Cayenne Diesel - Meteor Grey Metallic
Logi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2725
Joined: Mon 09. Dec 2002 20:32
Location: Hafnarfjörður

Postby Svezel » Tue 23. Sep 2003 14:09

Ég var farinn að nota Meguars Gold Class en fór að nota Turtle Wax fyrir tveimur mánuðum og er bara mjög sáttur við það bón. Kostaði heldur ekki nema 1kr brúsinn :D
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby jth » Tue 23. Sep 2003 14:48

E34 M5 wrote:Ég hef nú notað Sonax nokkuð reglulega á mína bíla og verið ánægður með það.


Ég er langt í frá fróður um lakk á bílum - en að nota Sonax reglulega getur ekki verið gott f.endingu lakksins. Sonax er eitt almesta hreinsibónið, þ.e.a.s. langmest af leysiefnum í því. Jú, það hreinsar vel, sérstaklega þegar maður þarf að losna við litla tjörubletti - en það hlýtur að vera líklegra til að slíta lakkinu.

Hér í Ameríku eru menn iðnir við að nota leir á bílana sína.
http://www.autogeek.net/motcalgolcla.html
Leirinn segja þeir hjálpa til við að ná óhreinindum og eldra bóni af. Þeir fullyrða að leirinn eigi ekki að slípa af lakkið sjálft, hef hvorki séð almennilegar greinar sem sanna það eða afsanna. Reyndar verður að taka tillit til þess að bílar verða ekki fyrir jafn miklum óhreinindum og heima á Íslandi, svona almennt séð.

Vandinn við flestar gæða vax- og bóntegundir er að þær reyna að njá sem mestri dýpt og gljáa, og það oftast á kostnað endingarinnar. Á Íslandi er hinsvegar erfitt að halda bílum hreinum án þess að þvo oft og þ.a.l. menn hugsanlega hrifnari af fjölliðuefnunum, TurtleWax, Concept o.þ.h. .
User avatar
jth
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 316
Joined: Fri 29. Nov 2002 17:49
Location: NY

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests