M30B35 RUNNING
Gaf mér hálftíma í kvöld til að rannsaka þetta rafmagnsmál mitt til hlýtar.
Eftir nánari eftirgrennslan kom í ljós að ég hafði ekki tengt tvær jarðtengingar, tvo þykka brúna víra.
Eftir að þeir voru komnir í jörð og lyklinum snúið á on, þá létu relay heyra í sér on ég heyrði bensín kom í spíssana.
Þá var ekkert annað en að kveikja á tryllitækinu og viti menn....hann RAUK í gang!
Og ÞVÍLÍKU LÆTIN!!!!, pústið vantar á svo þetta varð massaflott hljóð

8)
Þar sem Gunni kemur til landsins á morgun varð ég að koma þessu í gang í kvöld,
þar sem ég var búinn að setja mér það markmið að koma mótornum ofan í og í gang aleinn.
Samt, hann á mikinn heiður skilið hann Gunni, leiðbeindi mér mikið í gegnum síma og msn.
En ég "gerði" þetta samt allt sjálfur
Ég þorði nú ekki að láta mótorinn ganga neitt nema pínu lítið, þar sem klukkan var orðin ellefu og
nágrannarnir eflaust ekki hrifnir af svona hávaða
Bæti úr því á laugardaginn, leyfi honum að ganga þá á kristilegri tíma.
Svo fara fínstillingar og seinnitímavandamál í vinnslu.
Látum þetta nægja í bili. Ég er bara glaður yfir þessu!
Vildi bara deila þessum tíðindum með ykkur
Kem með myndir/video um helgina af vélinni í gangi.....