Quote:
700 miljóna króna tap varð á kaskótryggingum ökutækja hjá tryggingafélögunum á síðasta ári. Fjöldi lúxusbíla hefur margfaldast á fáum árum og tjónakostnaður aukist stórfenglega. Tryggingafélögin skoða nú hvort breyta þurfi reiknilíkönum sínum vegna þessa, og endurskoða iðgjöld.
Tryggingafélögin standa nú frammi fyrir ákveðnum "góðærisvanda". Þau tapa af kaskótryggingum því viðgerðir á svona bílum eru rándýrar og fjöldi glæsikerranna margfaldast með hverju árinu sem líður.
Árið 2004 högnuðust tryggingafélögin um 10 miljónir á frjálsum ökutækjatryggingum, árið 2005 töpuðu félögin hins vegar 334 miljónum á þessum sömu tryggingum og í fyrra nam tapið 721 miljón króna. Þessi tölfræði kemur heim og saman við fjölgun lúxusbílanna. Fjöldi bíla af tegundunum BMW, Range Rover og Mercedes Benz hefur fimmfaldast frá árinu 2001 og þrefalt fleiri Audiar og tvöfalt fleiri Lexusar eru á götunum nú en fyrir 6 árum.
Einar Þorláksson, vörustjóri ökutækjatrygginga hjá TM, segir að iðgjöldin séu til endurskoðunar. Til greina komi að setja lúxusbílana í séráhættuflokk. Pétur Már Jónsson, aðstoðarforstjóri VÍS segir tjónatíðnina hafa aukist um 30% á þremur árum og það skili sér í auknu tapi á kaskótryggingum.
Tekið af ruv.is,
700 m.kr. tap á kaskótryggingum
Það verður fróðlegt að sjá hvað kemur útúr þessu.
Það getur þó ekki verið að iðgjöldin hækki á alla bíla, þeir hljóta að setja mörkin einhversstaðar, ekki bara heilt yfir tegundina.
Finnst ég nú vera að borga andskoti nógu mikið í iðgjöld núþegar.