zneb wrote:
já, það heyrist ekkert í dælunni, tengið fyrir dæluna var reyndar ónýtt en það var búið að græja það, virkar samt ekki
Fyrst það heyrist ekkert í dælunni þá er hún eflaust illa tengd eða biluð, þú ættir að komast fljótt að því hvort er málið, ætti zneb ekki að getað jumpstartað dælunni með 12v til að ganga út skugga um þetta ?
Annars borgar sig eflaust líka að hreinsa spíssana og athuga hvort slöngurnar séu í lagi... ég sjálfur notaði títiprjón til að hreinsa spíssana og skaut lofti í gegnum slöngurnar, virkaði mjög vel.
Svo safnast oft skítur í botninn á forðabúrinu svo það er ekki vitlaust að taka það úr og skola það vel, bensínstöðvargæjarnir nenna ekki að sía rúðupissið því það tekur of langan tíma svo þeir taka alltaf síuna úr... því þeir eru með svo "hreinan vökva", right.
Alveg sammála þér að það er ómögulegt að keyra þessa dagana án rúðupiss.