Langaði að "update-a" þetta.
Ég hringdi í gaurinn eftir prófinn og þá kom í ljós að hann hafði nuddað hann eitthvað smá og selt til gaurs sem gerir við bíla fyrir klink.
Ég er alltaf að leita að bílum núna og viti menn fyrir nokkrum dögum dúkkaði hann aftur upp á Pistonheads.
Fjölskyldan fór því í ferðalag í dag ca. 130 km hvora leið til að kíkja á bílinn. Var mjög spenntur þar sem þessi gaur var líka alveg til í skipti ...
Þegar komið var á staðinn kom MJÖG fljótt í ljós að þessi bíll er algjör haugur. Hann er mjög fjarska fallegur en þegar komið er nær sjást ryð bólur á öllum hurðum, hann var á sitt hvorum dekkjunum og svo var rifið bílstjórasætið. Þegar ég prófaði kom í ljós að stýrisdælan er farin að kvarta, hann var ekki sérlega ljúfur í gíra o.s.frv.
Sem sagt ekki bíllinn fyrir mig
Þá er það bara að halda áfram að leita...
Ég er alltaf að sjá 323i hér nálægt en langar í 328i. Hefur einhver reynslu af báðum og getur sagt mér hvort það sé mikill munur á þeim?