Eins og menn hafa kannski tekið eftri þá fjárfesti ég í einu stykki E30 325i Cabrio. En mig vantar svar við nokkrum spurningum sem hafa verið að leika huga minn núna undanfarna daga.
1. Vélin er ekin 195. þ.km. > Hversu langt er á milli tímareima skipta??
2. Eins og er er opið drif í bílnum en ég ætla að kaupa læst drif fyrir næsta sumar. Ég er að gæla við það að setja 4.10 S drif í bílinn svo að hann verði aðeins sneggri upp, ég er ekki að falast eftir háhraða á E30. Er eitthvað annað hlutfall sem menn mæla með, er vélin kannski í 3000 rpm. á 100 km/h. með 4.10 drifi ?
3. Þarf ég að hafa áhyggjur af því að heddpakkningin sé að fara að gefa sig?
4. Er ekki alveg örugglega hægt að skipta um olíu á gírkassanum ? Ef svo er, hvernig er það gert og hvaða olía á að fara á hann?
Mbk,
