einarsss wrote:
Bjarki wrote:
þetta er eitthvað sem á eftir að gerast oftar!
Bara dýrt, það er ekki nóg að geta borgað af láninu og átt eitthvað
smá í bensín þegar maður á m5 e39

Það verður örugglega hægt að gera góð kaup í smá "biluðum" m5 þegar fram líða stundir.
ef þú kallar bensín í e39 m5 "eitthvað smávegins af peningum" hvernig er þá eiginlega mikið af peningum í bensín hjá þér ?

Já þetta var svona öfugmæli.
Reiknaði fyrir einn mætan mann sem þekki, sem hafði hug á því að kaupa sér M5 e39, hvað hann mætti eiga von á í bensínkostnað.
20þkm á ári 1670km á mánuði
18l/100km - 130kr/l
ca 39þ í bensín á mánuði.
Sem er þá kannski aðeins minna en menn eru að borga af góða láninu sem þeir yfirtóku.
Svo bætist við viðhald, þetta eru ekki viðhaldsfríir bílar.
Virkilega cool bílar en menn verða bara að vita hvað þetta kostar.
sammála því, þetta drekkur rosalega og 40k+ á mánuði er bara geðveiki ... held ég fari ekki með 40k samtals á 3 bíla á mánuði.
Svo er allt viðhald dýrt!, dekkin eru ekki gefins undir þetta og lítið sem amatör maður í viðgerðum getur lagað sjálfur.