KLyX wrote:
bimmer wrote:
KLyX wrote:
Held reyndar að þetta kerfi komi aðeins til með að fara í gang lendi bíllinn í slysi.
Les það ekki út úr þessari setningu:
"Það mun jafnframt þýða að allir bílar verða undir gervihnattaeftirliti."
Já, þetta er frekar kjánalega orðað, en ég fór að lesa greinina í 24 stundum og þar er tekið sérstaklega fram: "Upplýsingarnar um stað og stund liggja eingöngu fyrir þegar bíll lendir í óhappi. Þess á milli er ekkert eftirlit."
Það eru persónuverndarsjónarmið sem koma eflaust til með að tryggja að annars konar eftirlit verður ekki hægt að hafa með bílum, nema þá með dómsúrskurði um hvert einstakt tilfelli, ef það er þá yfir höfuð hægt að virkja þennan búnað á annan hátt.
Ef ég skil þetta rétt þá er þetta bara neyðar búnaður. Ef þetta er eitthvað í samlíkingu við sjálfvirka staðsetningarkerfið hjá skipunum þá ætti lögreglan aldrei að fá aðgang að þessu kerfi. Aðalega útf því að ef lögreglan hefur aðgang að svona búnaði með dómsúrskurði eða bara að sínum eigin vilja þá fer fólk kannski að aftengja þennan búnað bara.
Held það að það sé svoleiðis hjá Landhelgisgæslunni. Hún hefur ekki aðgang að þessum upplýsingum svo að skip sem eru að ólöglegum veiðum séu ekki að rífa sendinn úr sambandi.
Allavegana er ég þeirra skoðunar að búnaður sem á að bjarga mannslífum á aldrei að vera hægt að nota til að fylgjast með ferðum fólks.
En hver veit hve langt Bjarni vill komast.