Að hala niður rúðu, rafrænt í frosti, er ekki góð skemmtun.

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Að hala niður rúðu, rafrænt í frosti, er ekki góð skemmtun.

Postby Brútus » Mon 12. Nov 2007 14:00

Ég kom við í bílalúgu um daginn í ágætis gaddi og var ekki búinn að vera að keyra lengi og bíllinn ekki orðinn heitur þá skrúfa ég niður rúðuna hjá mér með takkanum og það smellur í henni og marrar þar til að ég heyri svona "klonk" hljóð.
Veit að þetta hljómar eins og að ég sé algert fifl en málið er að ég hefði hætt að hala niður á stundinni ef að ég hefði ekki í hugsunarleysi þrýst það fast á takkann að hann fór í svona "skrúfa sjálkrafa alveg niður" mode.
Núna þegar að ég reyni að setja rúðuna niður með takkanum þá heyri ég í mótornum og hann virðist fara með eitthvað unit ákveðið mikið upp og ákveðið mikið niður rétt eins og hér áður en rúðan, hún hreyfist ekkert.
Ég er að vinna í því að fá skúr til að notast við til að laga þetta.
Er með e-36'96 4door bílinn.

Hvað er ég líklegast búinn að brjóta inni í hurðinni og er þetta mikil vesen viðgerð?
Eru til leiðbeiningar með myndum til að taka hurðarspjald af án þess að skilja hugsanlega eftir ljót ummerki.
User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56

Postby _Halli_ » Mon 12. Nov 2007 15:12

Ég hef lent í því að sleðinn sem hreyfist til í brautinni losni frá og því hreyfist sleðinn ekkert en mótorinn og allt dingsið hreyfist.

Sérð þetta voða vel hér http://www.realoem.com/bmw/showparts.do?model=CA31&mospid=47436&btnr=51_2055&hg=51&fg=10
Stykki númer 2 fer inn í brautina og hreyfist til þar.

Ég veit ekki alveg hvernig á að útskýra þetta betur, sérð þetta um leið og þú tekur frá hurðaspjalið ef það er þetta sem er að.


Annars eru 2 skrúfur sem þú þarft að losa til að taka af hurðaspjaldið, T20 eða T25 minnir mig, þær eru staðsettar bakvið handfangið. Svo skrúfarðu bara læsingarpinnann af og smellir hurðaspjaldinu af. Held að það sé best að byrja neðst. Man ekki hvort þú þarft að lyfta upp eða toga út til að losa spjaldið efst.



Edit: Hef líka lent í því að járnið sem festir rúðuna losni bara af rúðuni og það er fest með einhvejru mega-kítti. Ég fann mér bara aðra rúðu :wink:
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR
User avatar
_Halli_
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 424
Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Location: Oslo


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 17 guests