basten wrote:
Ég hef grun um að þetta fari í Hæstarétt, ansi sterk rök sem ákæruvaldið hefur og hreinlega furðulegt að þetta hafi verið niðurstaðan.
Sjá dóminn hér:
http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/ ... l=1&Words=
Þau hafa nefnilega alls ekki sterk rök.
Þetta er laukrétt sem Kull er að tjá sig um, sönnunarbyrðin liggur hjá ákæruvaldinu og ef þau rök sanna ekki án nokkurns vafa að um lögbrot sé að ræða að þá verður dómurinn að sýkna.
En aftur á móti liggur núna boltinn aftur hjá ákæruvaldinu hvort þeir vilja ganga með þetta lengra, en lögsóknin verður að halda vatni.
Það eru ferlega margir sem halda að ratsjárinn sé heilög ritning, en svo er ekki. Það er margt sem að getur truflað þetta tæki, þess vegna verður að ganga úr skugga um hvort tækið sé að virka rétt, burtséð frá því hvort þú sért með 10.000watta bassabox eða páfagauk í búri. Sönnunarbyrðin liggur hjá ákæruvaldinu að sanna um að notkun ratsjásins sé fullnægt, og ekki bætir það úr skák ef lögreglumennirnir sem áttu hlut í máli muna ekki eftir atvikinu.