by íbbi_ » Fri 18. Jul 2008 18:33
JÆJA... er ekki kominn tími á smá update?
það hefur EKKERT skeð í bílnum síðan ég póstaði síðast, nema jú að ég massaði hann og sá að lakkið var bara game over.. einnig seldi ég (því miður) undan honum svörtu felgurnar,
ég hef hinsvegar ekki hunsað greyjð síðan í haust, og er búinn að vera duglegur að sanka að mér drasli til að bæði klára hann, og breyta meira,
nú loksins er bíllin að fá málningu, við byrjum á honum á morgun,
ég var fyrir 2 vikum sirka að fá stóra sendingu frá US&A,
þar fór fremst fylkingar nítrókerfið og bensínkerfið sem ég var búinn að kaupa,
einnig komu alskonar partar eins og alvöru kertaþræðir, kerti f/nitro, armor board og margt margt flr, alveg stappað vörubretti af kössum,
svo eru tvær feitar á leiðini í þessum töluðu,
ég lét mappa fyrir mig nýja mótortölvu úti í us, og hún er á leiðini núna
alskonar smádót til að klára, lengingar á loomi fyrir súrefnisskynjara og slíkt,
svo eru 18" z06 corvette felgur á leiðini 11" breiðar, mér fannst 17" alltaf bara of lítið, z06 felgurnar eru gunmetal, en ekki svartar eins og felgurnar sem þær leystu af hólmi,
ég áhvað loksins að láta vaða og fara í FJÖÐRUN<--
á leiðini í fjöðrun eru:
Vogtland gormar, lækkun upp á 1.5"
BILSTEIN demparar, (gas)
SPOHN ballancestangir, bæði að framan og aftan,(10mm þykkari en orginal)
UMI chromoly strut bar
UMI grindartengingar (bitar sem braca saman aftur og fram grindarbita bílsins) gífurleg stífun f/ boddý
UMI spyrnur (tubular) lengri en orginal
UMI relocation bracket F/stífur, þessi bracket breyta pinjónhallanum á hásinguni, þannig að hún hreyfist öðruvísi og bíllinn sest öðruvísi og jafnar niður á afturendan, þetta hefur einnig þau áhrif að bíll sem er búið að lækka, fær aftur upprunalega "fjöðrunarvegalengd" sem hann hafði tapað við að vera slammaður niður
allar fóðringar, alöru
performance gírkassapúði
nú er loksins farið að sjá fyrir endan á þessu, ég er kominn með bókstaflega allt sem mig vantar til að klára bílin, fyrir utan stýrisdælu og strekkjara, auk þess vantar mig dekk á 18" felgurnar,
það verður forvitnilegt að sjá hversu fljótt þetta dettur inn, og hvenar ég fæ hann úr málun, mér persónulega liggur ekkert á, enda búinn að vera að þessu síðan sumarið 06, en það er ágætt að sjá ekki fram á meiri peningaútlát smá stund allavega.
mig langar að framkvæma meiri breytingar á bæði fjöðrun, vél, og drifbúnaði, en þegar ég verð búinn með núverandi áfanga verður nánast allt kram og fjöðrunarkerfi bílsins orðið alveg custom, og ég hef ekki ennþá keypt einn einasta notaðan hlut í þetta, fyrir utan jú afturspoilerinn sem var rifinn af tjónabíl úti og sendur hingað á norðurpólin,
flr update og myndir væntanlegar fyrir þá sem kunna að hafa áhuga
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll