Árekstur :-(((((

Hér skal spjalla um BMW.

Árekstur :-(((((

Postby iar » Thu 11. Sep 2003 22:56

Gadem! :evil: :evil: :evil:

Hlaut að koma að því í brjálæðinu hér í umferðinni. Fékk einn í hliðina í gærkvöldi. :argh: :argh: :burn:

Gaurinn ákvað að fara af vinstri akreininni á Hringbraut (á leið austur) inn í hringtorgið og beint út aftur á Suðurgötu en reyndi að fara í gegnum mig. Magnaður andskoti að láta sér detta þetta í hug að keyra svona! :evil:

Engin slys á fólki sem betur fer nema ég er meinilla farinn andlega... djö sem maður nennir ekki að lenda og standa í svona vitleysu. :puke:

En eins og góður maður sagði, á meðan það er bara járnið en ekki kjötið sem skemmist þá er allt í góðu..
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Ozeki » Thu 11. Sep 2003 23:11

Fúlt :(

Hvert ætli hann hafi verið að góna þegar hann beyjir út úr hringtorginu .... maður keyrir ekki bara í gegnum bíl við hliðina á sér ef maður er á annað borð að horfa hvert maður er að fara :?: :!:

Er bílinn mikið skemmdur .. ?
User avatar
Ozeki
Kassabílstjóri
 
Posts: 167
Joined: Wed 16. Oct 2002 15:12
Location: Hér og Nú

Postby Haffi » Thu 11. Sep 2003 23:35

Dude ég samhryggist!!!!!!!! :argh: :argh: :argh: :argh: :argh: :argh:
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby Benzari » Fri 12. Sep 2003 00:12

Djöfull að heyra þetta.

Er hinn í rétti ? :?: ?
Ég var mjög nálægt því í vor að gera sömu vitleysu og þessi klessukarl en bíllinn við hliðina stoppaði sem betur fer.
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Fri 12. Sep 2003 08:34

Þetta er fúlt að heyra og nú áttu eftir að díla við þessi leiðinda tryggingafélög og það er ekkert grín.

Þú þarft að hafa með þér eftirfarandi;

Nóg af vaselíni
Diktafón til að taka upp allt sem þeir segja því þeir standa ekki við neitt
Myndavél til að bóka sjálfur tjónið, varahluti o.s.frv.
Láttu þá segja þér skýrt (í diktafónin) hvort þeir beri ábyrgð á viðgerðinni eða þú... Þeir segja nefnilega að maður megi velja verkstæði en firra sig allri ábyrgð ef eitthvað klikkar sem er lagalega rangt þar sem maður er að kaupa þjónustu af þeim og þeir bera ábyrgð á henni þó þeir framselji til þriðja aðila.
Gættu þess að láta þá panta varahlutina og hafðu það skriflegt að það sé á þeirra ábyrgð (eða á diktafóninum), þá hefur þú eitthvað á þá ÞEGAR það koma rangir varahlutir ALLTOF seint.
Allt þetta er nauðsynlegt svo þú hafir nú bílaleigubíl á meðan og svo þetta taki ekki 7 vikur eins og hjá mér.

PS, varstu í órétt?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Gunni » Fri 12. Sep 2003 10:52

úff fúlt maður :( samhryggist. Varstu í órétti ? er bíllin kannski ónýtur ?
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby iar » Fri 12. Sep 2003 11:46

bebecar wrote:Þetta er fúlt að heyra og nú áttu eftir að díla við þessi leiðinda tryggingafélög og það er ekkert grín.

Þú þarft að hafa með þér eftirfarandi;

Nóg af vaselíni
Diktafón til að taka upp allt sem þeir segja því þeir standa ekki við neitt
Myndavél til að bóka sjálfur tjónið, varahluti o.s.frv.
Láttu þá segja þér skýrt (í diktafónin) hvort þeir beri ábyrgð á viðgerðinni eða þú... Þeir segja nefnilega að maður megi velja verkstæði en firra sig allri ábyrgð ef eitthvað klikkar sem er lagalega rangt þar sem maður er að kaupa þjónustu af þeim og þeir bera ábyrgð á henni þó þeir framselji til þriðja aðila.
Gættu þess að láta þá panta varahlutina og hafðu það skriflegt að það sé á þeirra ábyrgð (eða á diktafóninum), þá hefur þú eitthvað á þá ÞEGAR það koma rangir varahlutir ALLTOF seint.
Allt þetta er nauðsynlegt svo þú hafir nú bílaleigubíl á meðan og svo þetta taki ekki 7 vikur eins og hjá mér.

PS, varstu í órétt?


Takk fyrir góð ráð bebecar. :-) Verst að eiga ekki diktafón. :-( Það væri örugglega óvitlaust þar sem þetta lið bullar oft alveg þvers og krus í mótsögn við hvert annað.

Ég tel mig í fullum rétti þarna því það má ekki keyra eins og gaurinn gerði, þ.e. fara út úr hringtorgi úr innri hring við fyrstu gatnamót. Ætti að vera alveg í sama rétti og ef ég fengi bíl í hliðina þegar ég keyri framhjá bið eða stöðvunarskyldu. Á þó eftir að heyra dóminn frá tryggingafélaginu, þarf líklega að skreppa út í búð og sækja vaselínið áður en ég heyri í þeim.

Eftirfarandi er tekið af http://us.is/okurettindi/category.asp?catID=319

Meginreglan er sú að sá sem ætlar að beygja út ur torginu á fyrstu gatnamótum, skal undantekningarlaust vera á hægri akrein, það er að segja á ytri akreininni í hringtorginu.

Þá er mælt með því að sá sem ætlar að aka framhjá fyrstu gatnamótunum og fara út á öðrum gatnamótum sé alla jafnan einnig á ytri akreininni, þótt ekkert banni honum að fara í innri hring.


Ég var semsagt að keyra eins og önnur málsgrein segir til um og hann var að keyra eins og fyrsta málsgrein segir til um nema var á vinstri akrein og í innri hring.

Sé auðvitað ekki gaurinn þar sem hann kemur þarna aftan að mér og inn í "mjöðmina" á mér. Ég sá vel inn í hringtorgið og þar var auðvitað enginn bíll svo ég held áfram eftir ytri hringnum.

Varðandi skemmdirnar þá verður skipt komplet um bílstjórahurð þar sem hún er illa beygluð. Svo er nudd og rispur alla leið aftur með hliðinni en lítið eða ekkert beyglað þar, framhurðin tók allt höggið.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby bebecar » Fri 12. Sep 2003 12:31

Ég hélt að bíll á innri akrein ætti alltaf réttin í hringtorgi en þetta meikar nú meiri sense svona.

Annars lítur þetta nú út fyrir glæfraakstur einhversskonar, hann kemur greinilega inn í hringtorgið á eftir þér en fer út á sama tíma og ætlar greinilega frammúr í hringtorginu....

Á hvernig bíl var hann og hve gamall, kyn o.s.frv.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Gunni » Fri 12. Sep 2003 13:03

já bíll á innri agrein á alltaf réttinn, NEMA ef hann ætlar út á fyrstu, því þá á hann að vera á ytri akrein.
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby bebecar » Fri 12. Sep 2003 13:22

Við vonum það allavega - það er SVOOOOOO leiðinlegt að standa í svona bulli.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby iar » Fri 12. Sep 2003 15:53

Jæja.. var að tala við vini mína hjá tryggingafélaginu. :D

Þetta var alveg klárt og ég er í 100% rétti! :clap: :clap:

Nú er það bara celebration í kvöld :drunk: og fæ mér Búkollu :biggrin:

Þvílíkur léttir þar sem maður var svo innilega að búast við hinu versta!

Þá er þessum hluta lokið og næst bara að bíða eftir hurðinni. Meira síðar, stay tuned.
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby bebecar » Fri 12. Sep 2003 15:57

Þetta eru góðar fréttir, það er þá einhver skynsemi í þessu!

EN það er SKO engin skynsemi í BÚKOLLU! Þá lá við að ég :puke: á skjáinn!

Er þessi uppskrift að norðan eða hvað :?:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Vargur » Fri 12. Sep 2003 16:14

Mér finnst þessi uppskrift alger snilld, væri til í að prófa, allavega er allt í uppskriftinni eitthvað sem mér finnst gott, þyrfti bara að bæta við skyri með perubragði ! :D
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby Haffi » Fri 12. Sep 2003 16:19

_ALDREI_ bjóða mér í mat :P
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby bebecar » Fri 12. Sep 2003 16:26

Stundum er of mikið af því góða ekki gott...

Ég færi t.d. ekki að blanda saman rauðvíni, bjór og freyðivíni!

Þið eruð kreisí! En þetta er skondin uppskrift!

Annars skil ég ekki hvernig nokkur nennir að standa í því að búa til Bernaise sósu fyrir Pizzu... þetta er svo mikið rosalegt vesen að ég geri þetta mesta lagi tvisvar á ári.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests