Geirinn wrote:
Bjössi wrote:
til þess að koma í veg fyrir svona trassaskap á að hringja í lögguna sem tekur skýrslu og skilar inn fyrir báða aðila
Sumir kalla þetta "tilganslaust útkall á Lögregluna" en fyrir alla muni, Lögreglan er þarna til að verja hagsmuni fólks, nýtið það.
Ég var einusinni farþegi í bíl sem keyrði aftaná annan á háannatíma á Kringlumýrabraut. Hringdum á lögregluna og biðum í 30 mín áður en einhver kom. Þá gafst hinn aðilinn upp á biðinni og fór. Hann gerði ekki tjónaskýrslu vegna þess að við höfðum ekki svoleiðis í okkar bíl og hann ekki í sínum. Við ákváðum samt að bíða eftir lögreglunni þar sem við töldum bílinn ekki ökuhæfan í því ástandi sem hann var. Biðum í klukkutíma í viðbót og þá hringdi ég og tilkynnti lögreglunni að við gáfumst upp á biðinni og fórum.
Það merkilega var að það keyrði lögreglubíll framhjá okkur í rólegheitunum og gerði EKKERT í því að það voru tveir bílar komnir upp á umferðareyju, annar í mauk að framan og hinn að aftan svo það var ekki hægt að loka skottinu.
Svo í öðrum árekstri þar sem keyrt var í hliðina á bílnum mínum á áramótunum eftir að strákur vanvirti biðskyldu (ég gruna að hann var drukkinn miðað við hraðann á honum). Þar kölluðum við til lögreglu. Það kom stuttu seinna einn bíll og lögreglumaðurinn spurði hvort það hefðu orðið meiðsl á fólki. Ég svaraði að það voru engin alvarleg meiðsl. Þá réttu þeir mér tjónaskýrslu og fóru. Sögðust hafa eitthvað mikið betra að gera niðri í bæ. Eftirá var ég mjög reiður útí lögregluna að hafa ekki einusinni látið mig né hinn ökumanninn blása því ég er nokkuð viss um að hann var undir áhrifum, bara hafði ekki vit á því á "slysstað" þar sem ég var í miklu áfalli enda harður árekstur sem ég var alls ekki að búast við.
Þetta varð til þess að ég hef núna ekkert álit á lögreglunni til að hjálpa mér þegar ég lendi í árekstri og hef einusinni lent í árekstri síðan og datt ekki til hugar að hringja á lögregluna þá.