'23 Rolls

Hér skal spjalla um BMW.

'23 Rolls

Postby Benzari » Tue 09. Sep 2003 17:03

Rolls Royce gamlinginn er/var fyrir utan Hótel Esju kl.16:30


Tekið af fornbíll.is,

"Áttræður Rolls Royce í Íslandsheimsókn!!

Í morgun renndi Rolls Royce árgerð 1923 í hlaðið hjá Sverri Ingólfssyni safnstjóra á Ystafelli. Að vonum hélt Sverrir að um ofsjón væri að ræða, enda ekki á hverjum degi sem slíkur eðalvagn rennir þar í hlað. Um er að ræða blæjubíl af Silver Ghost gerð í eigu Bandaríkjamannsins Frederich Brown. Er hann hér í viku heimsókn ásamt dóttir sinni og voru þau að koma frá Seyðisfirði, en ætlunin er að keyra hringinn. Eru mæðginin í hnattferð á þessum forláta fornbíl og er Ísland fertugasta landið sem þau heimsækja. Reikna má með því að bíllinn komi suður til Reykjavíkur nú um helgina og eru fornbílamenn beðnir um að hafa augun opin og reyna að festa gripinn á filmu. Að sögn Sverris er bíllinn blár á litinn með drapplita blæju. Munu væntanlega birtast myndir af honum hér á heimasíðunni í næstu viku. [05.09] "
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Postby Stefan325i » Tue 09. Sep 2003 18:21

alveg klikkaður bíll hann var í fréttunum um daginn,

þegar maðurinn var spurður afhverju hann væri að þessu þá sagði hann

$$$ Because i can ! $$$ sem mér fanst mjög flott svar hja kalli :)
E30 S50B32
X5 3,0i ´02
Artic Cat ZR500 ´98
GSTuning
User avatar
Stefan325i
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2596
Joined: Wed 04. Sep 2002 18:57
Location: Milemarker 85.

Postby Bjarkih » Tue 09. Sep 2003 19:14

Hann var hérna á Akureyri á föstudaginn. Truflaði marga sem áttu leið hjá Hótel KEA. ;-) Það var víst gengið nokkra hringi í kringum hann.
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby iar » Tue 09. Sep 2003 21:18

Stefan325i wrote: $$$ Because i can ! $$$ sem mér fanst mjög flott svar hja kalli :)


Gotta löv itt! :-) Frábært svar!
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby bebecar » Wed 10. Sep 2003 09:20

Já, ég sá hann einmitt fyrir utan Esju í gær.

Þetta er ótrúlegt flykki og lítur bara ansi vel út, smá ryð og svona en ekkert alvarlegt. Það sem manni fanst eiginlega fyndnast var stærðin á framluktunum - þær eru HUGE eða álíka og ruslafatan á skrifstofunni minni....
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 19 guests