BMW 540i e39

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

BMW 540i e39

Postby Niflhel » Mon 24. Sep 2007 14:41

BMW 540i E39

Árgerð: 1996
Litur: Dökkgrænn.
Skipting: Sjálfskiptur.
Vél: 4.4l V8 - 286 hestöfl og 420 nm í tog.
Drif: Afturhjóladrif.
Dekk/felgur: Vetrardekk á 16" BMW álfelgum, sumardekk á 18" BMW álfelgum.
Keyrður: 177.xxx km.
Tími 0-100 km/klst: 6.3 sekúndur.
Mesti hraði: Takmarkaður í 250 km/klst.
Lítrar í bensíntanki: 70 lítrar.
Verð: 1.35 milljón.

Ég er sem sagt að selja þennan frábæra bíl, BMW 540. Hann vinnur ótrúlega vel og togar ótrúlega mikið. Þessi vél er hreint yndi og er hljóðið úr henni yfirnáttúrulega fallegt. Hann er nýlega keyptur af mér og pabba mínum en hann virðist ekki henta okkur þar sem hann verður mikið skólabíllinn minn í vetur. Á meðan bíllinn var í okkar eigu höfum við skipt um slöngu frá vatnskassa að blokkinni og aðra samskonar slöngu líka. Þar að auki skiptum við um dempara að framan, bremsudiska og klossa og fleiri bremsuhluti að aftan og framan, stýrisspindla, hosur og margt, margt fleira. Þetta allt kostaði í kringum 300 þúsund kallinn svo að það er mikill plús. Hann eyðir í kringum 13-14 lítrum á hundraðið samkvæmt aksturstölvunni og verð ég að segja, ef það er satt, að það sé alveg nokkuð góð eyðsla miðað við stærð vélar.
Þessi bíll er með fínasta hljóðkerfi, sex diska magasín, dökkar rúður að aftan, leðurinnréttingu, Climate Control, frábæra sjálfskiptingu með steptronic möguleika, stórt skott og margt, margt fleira.
Sumardekkin sem fylgja eru mjög eydd en felgurnar mjög fallegar.
Það sem mætti laga er hægri afturglugginn, það er ekki hægt að skrúfa hann upp né niður og vinstri afturhurðin opnast ekki innan frá. Þetta tvennt ætti að vera mjög auðvelt að laga.
Fyrri eigandi sagði okkur að hann hafði skipt um vatnskassann fyrir um þrem mánuðum síðan ásamt fleiri hlutum.
Ef þú hefur áhuga, hringdu í síma 699-6129, 899-2005, 663-2262, 552-6129 eða sentu mér bara personal message.

Með vonir um áhuga á frábærum bíl, Sindri.
Vorsprung durch technik.
Niflhel
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 4
Joined: Mon 24. Sep 2007 01:00

Postby Mr_Gold » Mon 24. Sep 2007 18:10

ertu með myndir af honum?
BMW 323i E-36 Seldur.
Mr_Gold
Kassabílstjóri
 
Posts: 100
Joined: Fri 22. Jun 2007 11:49
Location: Reykjavík..

Postby Angelic0- » Mon 24. Sep 2007 18:14

myndir... endilega..
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík


Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 11 guests