E30 M3 - '89 Hvítur - Restart á projecti

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

Postby xtract- » Mon 24. Sep 2007 00:40

saemi wrote:Ég er aðeins búinn að kynna mér málið.

Það verður að segjast að það er mjög miður að svona lagað skuli vera í gangi hérna á kraftinum á þessum nótum. Úr því sem komið er, þá held ég að það sé rétt að eftirfarandi komi fram.

Sögurnar frá Tóta og Þórði eru GJÖRÓLÍKAR!

Netið, síður eins og þessar eru ekki besti miðillinn til að útkljá svona mál. Það er auðvelt að segja eitthvað og halda því fram sem kannski reynist ekki alveg 100% sannleikurinn. Sitt sýnist hverjum og það hefur áhrif á það hvernig fólk upplifir hlutina. Það sem einn segir er kannski ekki eins og annar upplifði þegar hann horfði á sama hlutinn gerast.

Ég ætla ekki að tjá mig meira um þessi mál hérna hvað varðar að taka afstöðu með einhverjum. Ég hef ekki hugmynd um hvað gerðist þarna nema sögur og ég hef enga sönnun fyrir því hvað gerðist í raun og get því ekkert sagt að þessi eigi ekki að gera svona og hinn ekki hitt. Ég og við allir nema hlutaðeigandi vitum ekkert hvað gerðist þarna og hvað er rétt!

Ég þekki marga sem koma að þessu máli, ekki þó alla, en það eru margir heiðursmenn sem ég þekki og koma að máli hér. Ég vona að þeir beri gæfu til þess að útkljá þessi mál, hvort sem það verður með hjálp minni og annarra eða upp á eigin spýtur. En svona mun þetta ekki ganga áfram í þessum litla mótorsport heimi á klakanum. Ég vil ekki missa í burtu mæta menn vegna svona missættis. Ég vil geta mætt út á braut og haldið áfram að sjá ykkur alla í stað þess að einhverjir séu í sínu horni og mæti ekki vegna ósættis við aðra. Þetta á að vera hægt að útkljá og menn að sættast. Ég veit að það er erfitt að kyngja broti af stolti sínu og gefa eftir þegar manni finnst vera brotið á sér. En stundum er það eina leiðin til að komast út úr litlu vandamáli sem er að eyðileggja fyrir stærri málum.

Gott máltæki segir: "Sá vægir sem vitið hefur meira".

Hvernig væri nú að það væri gengið í það að útkljá þetta mál í eitt skipti fyrir öll svo við gætum haldið áfram að tala um bílana okkar og sportið, ekki svona leiðindi. Ég legg til að hlutaðeigandi menn hætti að tjá sig hérna inni á móti hvorum öðrum, heldur hittist og ræði málin með hlutlausum aðilum (svo það verði örugglega bara talað, ekki öskrað). Ég skal gjarnan taka að mér að koma því á ef mér er treyst fyrir því. Sendið bara póst á mig á smu@islandia.is ef þið eruð til í eitthvað svoleiðis.

Ég á eftir að heyra meira af þessu á næstu dögum, en vonandi að fólk haldi að sér puttunum hérna og setji klaka á þetta. Þetta er ekki rétta aðferðin sem er í gangi hérna.


Vel að orði komið.
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Postby Jón Ragnar » Mon 24. Sep 2007 00:40

Jáhá...

Gaman hvernig fólk talar um mann :roll:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Postby Angelic0- » Mon 24. Sep 2007 00:42

Porsche-Ísland wrote:Bjó hann til útlit síðunnar og bjó líka til félagsskýrtieni.


Hvar get ég nálgast þannig :?:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Alpina » Mon 24. Sep 2007 00:43

Alpina wrote:
Alpina wrote:Hér úlfuð er líkari ölvun
allir sem taka hér þátt
bara því fylgi ei bölvun
best er jú einhuga sátt



vá hvað allt er hér vitlaust
verst að ég skil ekki neitt
sumt hér er párað svo siðlaust
sóðalegt orðbragðið beitt


hér lýkur nú leiknum með orðum
af lágkúru orðið er gott
tökum hér tal eins og forðum
tildæmis háðið og spott
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby bjornvil » Mon 24. Sep 2007 00:45

:cry: Get ég farið að sofa núna? :D
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby gunnar » Mon 24. Sep 2007 00:49

bjornvil wrote::cry: Get ég farið að sofa núna? :D


Kerlingin orðin brjáluð og farin að heimta þig í bólið?

:lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby arnibjorn » Mon 24. Sep 2007 00:50

gunnar wrote:
bjornvil wrote::cry: Get ég farið að sofa núna? :D


Kerlingin orðin brjáluð og farin að heimta þig í bólið?

:lol:


Mín var eitthvað að rífa sig áðan.. en ég heyrði ekkert hvað hún sagði!

Það var svo mikið að gera á kraftinum! :lol:
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby gunnar » Mon 24. Sep 2007 00:50

Full time job. :lol:

Allt annað er bara aukavinna.. :oops:
Last edited by gunnar on Mon 24. Sep 2007 00:51, edited 1 time in total.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Angelic0- » Mon 24. Sep 2007 00:51

jæja, þá er vonandi búið að salta málið....

en er þessi möppunar-brennara-græja til sölu :?:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby bjornvil » Mon 24. Sep 2007 00:51

arnibjorn wrote:
gunnar wrote:
bjornvil wrote::cry: Get ég farið að sofa núna? :D


Kerlingin orðin brjáluð og farin að heimta þig í bólið?

:lol:


Mín var eitthvað að rífa sig áðan.. en ég heyrði ekkert hvað hún sagði!

Það var svo mikið að gera á kraftinum! :lol:


:rollinglaugh:

Mín er nú sofnuð, ég er bara orðinn svo sybbinn :oops:
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby srr » Mon 24. Sep 2007 00:52

Kraftsmeðlimir verða þreyttir á morgun, það er greinilegt miðað við "áhorfin" í kvöld :lol:
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Postby Aron Fridrik » Mon 24. Sep 2007 00:52

mín er í útlöndum.. þetta bjargaðist :lol:
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Postby bjornvil » Mon 24. Sep 2007 00:53

Bílar meðlima
Stjórnandi: Gunni

Virkir notendur: Angelic0-, arnibjorn, bimma_frík, Danni, demi, Eggert, F2, Flappinn, GGe, gretsky, gunnar, iar, Ída, jon mar, Jón Ragnar, KFC, Kristjan PGT, Lindemann, Porsche-Ísland


Það voru þónokkuð fleiri áðan, en ég held að ég hafi aldrei séð svona marga í þessum lista :)
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn" :(
User avatar
bjornvil
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1278
Joined: Mon 12. May 2003 14:38
Location: Keflavík

Postby Danni » Mon 24. Sep 2007 00:53

Alls ekki átti ég von á að sjá þessa menn koma með svona rifrildi og vitleysu á spjallið. Einsog alla vega annar þeirra hefur nú tekið það fram oftar en einusinni að akkúrat svona vitleysa er Kraftinum niðrandi.

En án þess að taka hlið annars einstaklingsins þá langar mig til að leggja smá til málana.

Sama hvor "byrjaði" þá finnst mér það alveg undir öllum hellum að sparka í bíl annars, hóta fjölskyldu hans barsmíðum og hrækja framan í manninn! Þessi Tóti ætti að skammast sín! (það er EF þetta er rétt, hann veit þá hvort hann á að taka þetta til sín eða ekki)

Þetta er einhver umræða sem var ALGJÖR ÓÞARFI að koma með hingað á spjallborðið, þó að þeir voru tregir að borga/ósammála með verð. Sama hvort það tekur langan tíma að vinna úr þessu máli þá verðið þið að gera það sjálfir! Ekki að blanda "saklausum" Kraftsmeðlimum í þetta.

Ég legg til að allt þetta óþarfa off-topic og leiðind um þetta mál verði annað hvort eytt eða fært í annan þráð og svo læst. Algjör vitleysa að halda þessu áfram. Þið sjáið hvernig þessi þráður er búinn að snúast, hann er bara orðinn eitthvað gjörsamlega tilgangslaust off-topic.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby xtract- » Mon 24. Sep 2007 00:55

mér sýnist "saklausir" kraftsmeðlimir hafa lúmskt gaman af því að fylgjast með þessu... :roll:
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

PreviousNext

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 27 guests