aronisonfire wrote:hvaða bekkur ? í TB ?
Jamm TB bekkurinn.
aronisonfire wrote:getur ekki verið vél sem er 321hö sé að tapa 50 hö á lélegu mappi og supercharger..

gstuning wrote:Ég og þú skulum gifta okkur svo ég geti komist á þennan 2002 turbo

Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

bimmer wrote:Gaman út á braut en heimferðin var nú ekki jafn ánægjuleg.
Keyrði fyrir aftan Tóta brautarstarfsmann á leiðinni heim og þar sem
vegurinn breikkar í 2 akreinar í Hafnarfirði ætla ég að lulla framúr
honum hægra megin við hann. Er alveg að koma að honum þegar
hann vippar sér yfir á hægri akrein og neglir niður beint fyrir framan
mig. Mér tekst með naumindum að komast hjá því að keyra á hann
og beygi til vinstri til að komast þeim megin við hann. Hann gerir sér
lítið fyrir og vippar sér á vinstri akreinina og hægir enn á sér. Í fyrra
skiptið hélt ég að hann hefði kannski ekki séð mig en þegar hann
gerir þetta aftur er alveg ljóst að þetta var viljandi.
Stoppa bílinn og þá kemur hann út úr bílnum öskrandi og æpandi yfir
því að ég hafi verið að bera út rógburð um hann á netinu (tengist
því þegar Tóti og félagi hans neituðu að borga að fullu fyrir tuningu
í vor).
Allavega hann kemur alvega að bílnum þar sem ég sit enn í honum með
hurðina hálfopna. Hann sparkar í hurðina sem lendir síðan á mér.
Ég fer út úr bílnum og þar stöndum við face to face og hann er alveg
að tapa sér út af þessu máli. Ég sagði honum eins og ég hef sagt áður
að boltinn í því máli sé hjá honum og hafi verið frá því í vor.
Eftir nokkuð þras hrækir hann í andlitið á mér og þá var mér nú alveg
nóg boðið og löðrunga hann með flötum lófa. Hann byrjar þá strax að
reyna að berja mig með krepptum hnefa. Ég næ að víkja mér undan og
ríf í hann og hendi honum til hliðar. Held að hann hafi þá fattað að hann
var ekkert að fara að lemja mig og hóf því í stað að hóta mér því að
hann kæmi með félaga sína til að ganga í skrokk á mér og allri minni
fjölskyldu. Eftir það stekkur hann að RNGTOY og sparkar aftur vel
fast í bílstjórahurðina þannig að hún beyglast enn meira.
Eftir þetta hleypur hann í burtu og forðar sér á bílnum og er næstum
búinn að keyra á bílinn hans Dóra sem hafði komið að þessu og lagt
fyrir framan okkur.
Allavega... ég er búinn að kæra Tóta til lögreglunnar og búinn að gefa
skýrslu sem og vitni.
Manni hreint og beint blöskrar þetta rugl og það hlýtur að vera meira
en lítið í ólagi hjá Tóta þessa dagana.

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 82 guests