Núna er kominn tími til að smella sér á stærri bimma svo að ég ætla að selja 318-inn minn. Hann er í mjög fínu standi, nýskoðaður án athugasemda og hefur ekkert verið að bila. Hef átt hann í rúmt ár og hef enn ekki keyrt bíl sem er betri í keyrslu.
Hann er 91´árgerð, bsk og keyrður 240 þús.
Hann er eilítið byrjaður að ryðga á sílsunum og á skottinu en það er auðveldlega hægt að laga. Honum fylgir 500 w magnari og í honum eru tveir 200 watta sony hátalarar en þarf aftur á móti að tengja græjurnar almennilega, á bara eftir að gera það. Sætin gætu þurft á smá hreinsun að halda en annars lítur hann mjög vel út og í heildina frábær bíll.
Hann er að eyða um 10 lítrum á hundraðið og ég get látið 16" helvíti flottar álfelgur fylgja með og hann er á 15" felgur með micro-skornum vel förnum sumardekkjum.
Verð:Tilboð
Ég reyni svo að senda link með myndum á næstunni ef menn vilja og ef þið viljið fá hugmynd um verð þá verð ég að hugsa málið en sendið þá bara comment varðandi það.

