jæja ég er með 628csi 81' og málið er að hann fær ekki bensín,
það er búið að setja bensín á hann til að útiloka það, svo þá tók ég slönguna sem liggur á milli dælu og síu og prufaði að láta dæluna ganga en ekkert kemur úr dælunni samt heyrist í henni suð og hún eitthvað að snúast, ég prufaði að halda puttanum fyrir til að fá þrýsting þá frusaðist smá bensín ásamt lofti þegar ég sleppti, er búinn að prufa að taka flotholtið upp úr tanknum og það er ekkert stíflað og sýnist vera í góðu lagi og sekkur oní bensín þegar maður setur það oní tankinn.
Gæti svo verið að dælan sé biluð þótt það heyrist eitthvað í henni? Eða er hún lengi að ná þrýstingi þar sem nátúrulega ekkert bensín var í leiðslunum bara loft?
og eitt enn ég náði honum í gang í hálfa mínótu og svo allt í einu drap hann á sér og fór ekki aftur í gang, eru einhverjir spekkingar hérna sem hafa lent í þessu eða vita hvað er að?
Kveðja Hjalti.





