Það er víst ég sem er þessi "heppni" ford focus eigandi.
Ég hef enga aðstöðu til að dunda mér við þetta sjálfur, svo ég neyðist til að finna einhvern handlaginn sem er til í að hjálpa mér fyrir nokkra seðla. Búinn að vera bíllaus í margar vikur að bíða eftir gírkassa, og það væri afskaplega gott að koma greyjinu mínu á hreyfingu aftur
Smá edit:
Já, eins og Kristján sagði þá hef ég gert þetta áður með hjálp (þá var eitthvað að current kassanum, sem við löguðum) og ég man nokkuð vel hvað þarf að taka frá og í hvaða röð til að gera þetta (frekar einfalt, taka loftsíu frá, rafgeymi, og mótorfestinguna sem er ofan á gírkassanum. Svo er best að hafa keðju til að hengja í vélina, og taka kassann undan bílnum.)