Datt í hug að setja þetta hingað inn þar sem menn eru svo helvíti mikið fyrir svart hérna
Tók mig til og shine-aði felgurnar á súkkunni fyrir veturinn. Þær voru orðnar helvíti lúnar, flögnuð glæran og komin oxitering í álið..
Ég sandblés þær og sprautaði sjálfur, með dekkin á. Smá skíta mix en þetta kemur mjög vel út og það er ekki séns að sjá það að dekkin hafi ekki verið tekin af. Þið sem eigið loftpressu og eruð í sandblásturshugleiðingum ekki hika við að dúndra á felgurnar..Easy Peasy! Keypti sand í Jákó, könnu í Byko og svo til að leysa upp alla málninguna/glæruna á felgunum keypti ég Uppleysir í húsasmiðjunni...og það er mesta eitur sem ég hef komist í kynni við...ég eiginlega hló bara þegar ég sá hvernig glæran kraumaði á felgunum og lak svo af! Ótrúlegur andskoti!
en hér er Jöklatryllirinn eins og hann var
Og hér eru svo tvær eftir sprautun ...Mér finnst þetta GEÐVEIKT svona svart og brýtur þetta aðeins upp.
