Hugsaðu dæmið til enda Kristján... hvað lánin varðar. Hvað verða þau há eftir 2 ár? En 4 ár? Hvað ætlarðu að búa þarna lengi?
Ef þú ert að taka hátt lán hlutfallslega séð á íbúðina, þá þarftu að treysta á miklar hækkanir, bara til þess eins að þurfa ekki að taka þér annað lán til að niðurgreiða þegar á svo að selja seinna meir. Þú borgar ekkert nema vexti af húsbréfinu fyrstu árin og ekkert fer inná höfuðstólinn, en á meðan hækkar lánið, hratt, vegna vísitölunnar.
Gott dæmi er íbúðin sem ég átti í Berjarima... ég var með lán á henni uppá 10.5 til að byrja með, en þegar ég seldi og greiða átti upp húsbréfið stóð það í 13 milljónum, tveimur og hálfu ári síðar. Hefði ég ekki verið svo heppinn að kaupa áður en miklar hækkanir áttu sér stað væri ég líklega í 3m króna tapi, þegar sölulaunum hefur verið bætt við.
Reiknaðu dæmið til enda, sjáðu hvað lánið geti hækkað mikið ca. miðað við X tíma, og sjáðu hvað þessi upphæð myndi duga lengi í leigu. Þú átt eftir að verða hissa á útkomunni.
Fólk þarf auðvitað þak yfir höfuðið og þessvegna er ekki hægt að horfa á fasteignakaup eins og verðbréfafjárfestingu. Vildi bara benda þér á þetta ef þú vissir ekki af þessu fyrir.... það er dýrt að kaupa og allt í einu lítur leiga, svo lengi sem hún sé skynsamlega lág, ekkert svo illa út.
Gangi þér vel
